BORG fasteignasala kynnir: Fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð að Norðurbrú 2 í Sjálandshverfi í Garðabæ. Eignin er samtals 102,9 fm, þar af 96,1 fm íbúð og 6,8 fm sérgeymsla. Útfrá stofu er stór og skjólgóður suðurpallur og stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Um er að ræða lítið og snyrtilegt fjölbýlishús og góð bílastæðaaðstaða er við húsið með nægum bílastæðum fyrir íbúa og gesti.Íbúðin hefur fengið töluverða endurnýjun frá árinu 2023, meðal annars nýtt eldhús, endurnýjaðar innréttingar á baðherbergi og í þvottahúsi, auk þess sem íbúðin hefur verið máluð og ýmsar aðrar endurbætur gerðar.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er sérþvottahús með innréttingu, vaski og góðri vinnuaðstöðu.
Eldhús, borðstofa og stofa mynda einstaklega rúmgott og bjart alrými. Eldhúsið var endurnýjað árið 2023 með fallegri innréttingu, höldum frá Innval og steinborðplötum frá S. Helgasyni. Eldhúsinu var jafnframt breytt og útbúin stór eyja sem tengir eldhús og stofurými vel saman. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni.
Úr stofu er gengið út á stóran og skjólgóðan suðurpall sem var endurnýjaður árið 2025, grindverk klætt að innan og pallurinn lakkaður í ágúst 2026. Pallasvæðið skapar einstaklega gott útirými við íbúðina.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Barnaherbergi er einnig með fataskáp og parketi. Sérsniðnar rúllugardínur eru í gluggum íbúðarinnar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar hefur verið sett ný innrétting, vaskur og blöndunartæki, endurnýjað gler við baðkar og endunýjuð blöndunartæki í sturtu.
Sérgeymsla í kjallara er 6,8 fm og þar er jafnframt sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Hleðslustöðvar eru í bílageymslu sem íbúar geta leigt aðgang að.
Húsfélagið hefur nýlega endurnýjað dyrasímakerfi og komið fyrir myndsíma. Rafmagnsopnun er á sameiginlegum inngangi og hurð að bílakjallara og sami lykill gengur að sameiginlegum dyrum hússins. Þrif sameignar, garðaþjónusta og snjómokstur eru í aðkeyptri þjónustu.
Endurbætur frá 2023:Endurnýjuð eldhúsinnrétting og steinborðplötur ásamt eldhúseyju.
Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Innrétting, vaskur og blöndunartæki í þvottahúsi.
Baðinnrétting, vaskur og blöndunartæki.
Baðkarsgler og blöndunartæki í sturtu.
Íbúðin máluð.
Sérsniðnar rúllugardínur.
Tvö gler endurnýjuð, 2025 og 2026.
Svalahurð.
Pallur endurnýjaður 2025 og lakkaður 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 788 9030, ulfar@fastborg.is