Fasteignaleitin
Opið hús:06. sept. kl 14:00-14:30
Skráð 1. sept. 2026

Kópavogsbraut 99

HæðHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
122.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
103.900.000 kr.
Fermetraverð
848.163 kr./m2
Fasteignamat
87.150.000 kr.
Brunabótamat
64.450.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Húsið er eftir

Íslenskur módernismi og funkis.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1958
2. hæð
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2063633
Landnúmer
115339
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Ný rafrmagnstafla sett upp 2022 og raflagnir endurnýjaðar inn í eldhúsi
Frárennslislagnir
Árið 2014 voru skólp og drenlagnir endurnýjaðar. 
Gluggar / Gler
Árið 2020-2021 va skipt um glugga á austurhlið íbúðarinnar og gler endurnýjað að hluta
Þak
Árið 2020-2021 var þak málað og skipt um Þakkrennur og rör.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, norður svalir
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi. Árið 2018 - Skipt um ofna og ofnalagir. 
Inngangur
Sérinngangur
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: 

Mjög vel staðsett og flott 122,5 fm. fimm herbergja efri hæð með sér inngangi í flottu þríbýlishúsi við Kópavogsbraut 99, 200 Kópavogi. Hús teiknað af Sigvalda Thordarsyni. Glæsilegt útsýni til sjávar, fjalla og víðar. Með eigninni fylgir bílskúrsréttindi.

Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús og geymslu. Auðvelt væri að nýta borðstofuna sem fjórða svefnhebergið fyrir þá sem það þurfa. 

Mikið endurnýjuð eign:
2014 - Skólp og drenlagnir endurnýjaðar. 
2018 - Skipt um ofna og ofnalagir. 
2018 - Skipt um parket og allar innihurðir.  
2018 - Ný útihurð.
2020-2021 - Hús málað að utan, Sprungu- og múrviðgert. þak málað og skipt um Þakkrennur og rör. Skipt um glugga á austurhlið íbúðarinnar og gler endurnýjað að hluta, tröppur að utan steyptar upp að nýju.
2022 - Stigahús undir svölum klæðning endurnýjuð, einangrað og málað.
2022 - Eldhúsinnrétting endurnýjað Ný rafmagnstafla, nýtt gólf og öll heimilstæki.
2025 - Niðurfall þvottahús endurnýjað.

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is


Nánari lýsing eignar:
Sérinngnagur, forstofa er með flísum á gólfi og flísalögðum stiga upp á efri hæð. Af efri palli í forstofunni er gengið er út á  stórar svalir af stigapalli, jafnframt er aðgengi þaðan að sér þvottahúsi/geymslu með flísum gólfi og opnanlegum glugga. Skipt var þar um niðurfall árið 2025.
Hol / gangur er mjög rúmgóður með parketi á gólfi og aðgengi inn í önnur rými. Eldhúsið er bæði með L-laga innréttingu og innréttingu á öðrum vegg.Nýleg og flott innréttingu og endurnýjuð heimilistæki. Gott vinnu, geymslu og borðpláss ásamt borðkróki. Gluggi veitir góða birtu inn. Tvöfaldur ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og spanhelluborð með viftu með útsogi. Flottar flísar á einum vegg og veggfóður á öðrum og korkur á gólfi. Inn af eldhúsi er svo mjög gott og rúmgott búr með hvítum skápum og skúffum með mikið og gott geymslupláss. 
Baðherbergi með flísum á gófi og á veggjum við baðkar, salerni og nýleg baðinnrétting með handlaug og spegli þar fyrir ofan og veggskáp þar á móti. Opnanlegur gluggi er inn á baðherbergi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott parket á gólfi og fataskápum.Hin herbergin tvö eru með parket á gólf. Öll herbergin þrjú eru með mikið og fallegt útsýni. Stofan er rúmgóð og björt með parket á gólfi og nýtur líka góðs af þessu glæsilega og fallega útsýni. Borðstofa tengist bæði stofu og eldhúsi. Falleg tvöföld hurð skilur að stofu og borðstofu. Parket á gólfi. Auðvelt væri að nýta borðstofuna sem fjóðra svefnherbergið, fyrir þá sem það þurfa.

Björt og rúmgóð, vel staðsett eign innan hverfis með flottum skjólsælum og sameiginlegum garði til suðurs, þar sem stutt er í leik- og grunnskóla sem og alla helstu þjónustu. Sundlaug Kópavogs í nágrenninu.

Eigninni fylgir bílskúrsréttur skv eignaskiptasamning. Hefð er fyrir því að þessi eign eigi enda röndina niður meðfram húsinu, rúmar 3-4 bíla í einni röð. Þannig hefur notkun átt sér stað. 

Nánari upplýsingar veita: 
Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700
af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/01/202258.100.000 kr.78.000.000 kr.122.5 m2636.734 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grenigrund 6
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Grenigrund 6
Grenigrund 6
200 Kópavogur
125.6 m2
Fjölbýlishús
413
636 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Ársalir 3
Skoða eignina Ársalir 3
Ársalir 3
201 Kópavogur
123.5 m2
Fjölbýlishús
312
720 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 501
Bílastæði
Strandgata 26 íb. 501
220 Hafnarfjörður
126.5 m2
Fjölbýlishús
312
1240 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 503
Bílastæði
Strandgata 26 íb. 503
220 Hafnarfjörður
135.4 m2
Fjölbýlishús
413
1255 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin