RE/MAX og Bára Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali kynna: Krummahóla 8, íbúð 505 í 111 Rvk með sér bílastæði í bílageymslu.Björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með frábæru útsýni á fimmtu hæð ásamt sér bílastæði í bílageymslu með rafhleðslustöð.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 72,7 m² sem skiptist í íbúð með geymslu 48,9 m² og stæði í bílageymslu 23,8 m².
Fáðu sent SÖLUYFIRLIT yfir eignina hérERT ÞÚ Í SÖLU HUGLEIÐINGUM?
Hafðu samband HÉR fyrir FRÍTT og skuldbindingarlaust
söluverðmat á þína eign.
Nánari lýsing:Eignin skiptist í: Stofu og eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Svalir út frá svefnherbergi. Á hæðinni er geymsla fyrir íbúðina sem er 5,2 m². Sér bílastæði í bílageymslu með rafhleðslustöð. Í sameign er þvottahús.
Gengið er inn í
anddyri þar sem er rúmgóður fataskápur. Parket á gólfum.
Eldhúsið er samliggjandi stofu/borðstofu. Hvítar innréttingar og spanhelluborð. Gluggi er við eldhúsið.
Stofan er í samliggjandi opnu og björtu rými, parket á gólfi.
Svefnherbergið er rúmgott og bjart herbergi með fataskápi og útgengi á
svalir sem skarta frábæru útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og Esjuna.
Baðherbergið er flísalagt á gólfi, innrétting við vask, salerni og baðkar með sturtu.
Um er að ræða vel staðsetta eign með fallegum gönguleiðum í allar áttir. Stutt er í skóla, leikskóla, sund, matvöruverslun og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:
Bára Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
RE/MAX senter
Skeifan 17 / 108 Reykjavík
E-mail: bara@remax.is
Sími: 773-7404
Hér er facebook síðan mín Heimasíða RE/MAX Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar) af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.