Borgir fasteignasala s. 588-2030 kynna :
Fjárfesting í Miðbænum sem gefur góðar tekjur:
Eignin er kjallari og bakhús staðsett á Laufásveginum rétt ofan við Listasafn Íslands.
Búið er að innrétta þrjár íbúðaraðstöður í eigninni, allar með sér inngangi.
Samtals er eignin skráð 129,7 fm sem skiptist Þannig: Eining í framhúsi: 36,3 fm. Efri hæð í bakhúsi: 36,7 fm og kjallari í bakhúsi 56,7 fm.
Í kjallara í framhúsi er:
Alrými : Stofa/eldhús eru í sameiginlegu rými. Hvít eldhúsinnrétting með vaski, uppþvotta- og eldavél, horngluggi sem snýr út á verönd.
Svefnherbergi : Rúmgott með rennihurð og glugga sem snýr út á verönd
Baðherbergi : Flísar á gólfum og veggjum að hluta, upphengt salerni, skápur undir vaski og gengið inní rúmgóða sturtu, lítill gluggi er á baðherberginu. Rennihurð inn á baðherbergið.Gólfin í í þessari einingu eru flotuð og með hita.
Sameiginlegt þvottahús og lítil sameiginleg geymsa er frammi á gangi við hliðina á þessari einingu.
Efri hæð í bakhúsi:
Alrými : Stofa/eldhús eru í sameiginlegu rými. Grá eldhúsinnrétting með vaski, helluborði, gufugleypir og bakaraofni. Plastparket er á gólfinu. Gluggar snúa út á verönd.
Svefniherbergið : Með glugga út á verönd og plastparketi á gólfi.
Baðherbergi : Flísar á gólfum og veggjum að hluta, skápur undir vaski, rúmgóð sturta.
Hallandi þak, góð lofthæð.
Kjallari í bakhúsi:
gengið niður stiga frá úti verönd.
Alrými : Stofa/eldhús eru í sameigninlegu rými. Grá eldhúsinnrétting með flísum á milli skápa, gufugleypi, bakarofni og helluborði. Plastparket á gólfum.
Svefnherbergi : Gengið niður eina tröppu, gluggi.
Baðherbergi : Flísar á gólfum og veggjum að hluta. Upphengt salerni, skápur undir vaski, rúmgóða sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Þak bakhús : Þak er klætt með þakdúk og þakklæðningu 25x150 milli sperra er 200mm steinull (þakull) með myndpappa. Neðan á sperrur kemur rakavarnarlag 0,2mm, 45x45 rafmagnsgrind og 2x13 gipsplötur.
Útveggir bakhús : útveggir eru einangraðir að innan með 100mm plasteinnagrun og múraðir. Úthlið sem snýr að garði er klædd með standandi bárujárni.
Gólf í bakhúsi : Efra gólfið er gert úr gólfbitum 45x200 c/c 400 einangrað með steinull, klætt að ofan með 18mm spónarplötum, að neðan er rakavarnarlag, lagnagrind 30 x70mm og 2x13 gipsplötur.
Nýlega er búið að laga þakkanntinn á húsinu.
Húsfélag er starfandi í húsinu.
Nánari upplýsingar veita Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali sími 896-8030 eða Jóhanna M Jóhannsdóttir í námi til löggildingar sími 820-0788