Skráð 11. feb. 2026

Ásholt 3

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
367.8 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
407.558 kr./m2
Fasteignamat
170.100.000 kr.
Brunabótamat
149.100.000 kr.
Mynd af Þorbjörn Geir Ólafsson
Þorbjörn Geir Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1973
Þvottahús
Geymsla 18m2
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2082774
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Dren endurnýjað 2019 og skólp myndað
Gluggar / Gler
Í lagi að sögn seljanda
Þak
Járn nýlega endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasalil og Trausti fasteignasala kynna:
*FRÁBÆRT KAUPTÆKIFÆRI*
Glæsilegt tveggja hæða einbýlishús með aukaíbúð á neðri hæð og sérinngangi við Ásholt 3 í Mosfellsbæ. Eignin býður upp á einstaka aðstöðu með yfirbyggðri sundlaug og heitum potti sem nú er nýtt sem bjartur sólskáli, ásamt fallegri og skjólgóðri lóð með miklum gróðri og veglegri timburverönd. Aukaíbúðin á neðri hæð er nýuppgerð með nýju eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi og býður upp á góða tekjumöguleika eða hentuga aðstöðu fyrir stóra fjölskyldu.

Efri hæðin er rúmgóð og björt með góðu skipulagi, stofu með arni, þremur til fjórum svefnherbergjum, eldhúsi og baðherbergi með bæði sturtu og baðkari.  Birt stærð eignarinnar skv. HMS eru 321,8 m2, þar af íbúð á hæð 134,8 m2, íbúðarherbergi í kjallara 134,8 m2 og bílskúr 52,2 m2. Búið er að byggja 18 m2 forstofu við húsið og 28 m2 sólskála sem ekki er skráð. Heildarstærð eignarinnar eru um 368 m2.


Einstök eign á fallegum og friðsælum stað í Mosfellsbæ með miklu útsýni og fjölbreytta nýtingarmöguleika.


Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með náttúruflísum á gólfi. Inn af forstofu er þvottahús með innangengi í eldhús. Úr forstofu er gengið í hol þar sem til vinstri er stórt svefnherbergi (upphaflega tvö herbergi) og til hægri flísalagt gestasalerni. Í holi er stigi niður á neðri hæð.
Á vinstri hönd úr holi er svefnherbergisgangur með barnaherbergi, hjónaherbergi með fataskápum og flísalögðu baðherbergi með bæði baðkari og sturtu. Til hægri er björt og rúmgóð stofa með arni og borðstofu. Úr borðstofu er innangengt í eldhús með stórri innréttingu og eyju, gashelluborði, ofni, háfi og tengi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Parket er á stofu og svefnherbergjum, en flísar í forstofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Úr stofu er gengið út á stóra timburverönd og í fallegan suðurgarð með 28 m² yfirbyggðri sundlaug sem nú er nýtt sem sólskáli með heitum potti.

Við hlið hússins er 52,2 m² bílskúr með útgengi í garð og garðskála, auk geymslu yfir bílskúrnum. Bílaplan og gönguleiðir eru hellulögð með snjóbræðslu. Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum með steyptri loftplötu yfir efri hæð, og fallegt útsýni er til Esjunnar.

Á neðri hæð er nýuppgerð íbúð með sérinngangi. Þar er forstofa, baðherbergi með sturtu og lítið þvottahús, eldhús og stofa í opnu rými og rúmgott svefnherbergi. Á neðri hæð er einnig að finna rúmgott gluggalaust rými sem áður var notað sem hobbý herbergi en í dag nýtt sem stór geymsla.
Samkvæmt eiganda hefur verið skipt um dren á vesturhlið, settir nýir gluggar og útidyrahurð í íbúð á neðri hæð, þakjárn endurnýjað og nýtt þak sett á sólskálann.


Hér á ferðinni frábært fjölskylduhús með aukaíbúð á fallegum útsýnisstað í Mosó. 
Bókið skoðun hjá Bjössa því hér er sjón sannarlega sögu ríkari!
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/01/201880.250.000 kr.81.900.000 kr.321.8 m2254.505 kr.
29/04/201461.250.000 kr.57.500.000 kr.321.8 m2178.682 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1973
5.2 m2
Fasteignanúmer
2082774
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.550.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
2.8 m2
Fasteignanúmer
2082774
1.8 m2
Fasteignanúmer
2082774
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin