Fasteignaleitin
Opið hús:24. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 19. sept. 2026

Norðurvangur 38

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
201.7 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
154.900.000 kr.
Fermetraverð
767.972 kr./m2
Fasteignamat
141.950.000 kr.
Brunabótamat
101.550.000 kr.
Mynd af Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1973
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Hleðslustöð
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2078460
Landnúmer
122056
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurnýjað í eldhúsi og þvottahúsi
Raflagnir
endurnýjaðar í eldhúsi og þvottahúsi
Frárennslislagnir
upprunalegt, metið í lagi 2025
Gluggar / Gler
gamlir
Þak
gamalt, málað 2020, vantar hatt á skorstein
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
ofnar
Inngangur
Margir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
* Þegar að núverandi eigendur keyptu húsið byrjun árs 2025, þá létu þau mynda skólplagnir en þær eru upprunalegar, þá metnar í lagi. Skýrsla ekki til en reikningur fyrir skoðuninni er til staðar.  
* Vantar "hatt" á stromp, þ.e., fyrri eigendur tóku hann af, þar sem trekkur var ekki nægur í arni að þeirra mati. 
Kvöð / kvaðir
* Lítill dúkkukofi sem staðsettur er á palli sunnanmegin við húsið, fylgir ekki með í kaupunum(seljandi ætlar að taka hann með). 
Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynna fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð við Norðurvang 38 í Hafnarfirði.

Skipulag hússins er mjög gott en það er skv., fasteignaskrá HMS samtals skráð 201,7 m2, þar af tvöfaldur 58,3 fermetra bílskúr. 
Aukin lofthæð er yfir aðalrýmum hússins og síðir gluggar sem hleypa inn mikilli birtu. Fallegur arinn er í stofu með Drápuhlíðargrjóti.
Um er að ræða frábært fjölskylduhús með möguleika á fjórum svefnherbergjum. Aðkoma að húsinu er góð en inngangur er í húsið, m.a. frá afgirtri verönd í bakgarði með heitum potti og útisturtu og frá stofu á verönd til suðurs. 

Bókið skoðun hjá Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is 

Nánari lýsing:
Forstofa: Með náttúrusteini á gólfi og skápum.
Gestasalerni: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Upphengt salerni, vaskur og gluggi til suðurs.
Borðstofa: Með  náttúrusteini á gólfi og gluggum til suðurs. Aukin lofthæð. Möguleiki væri að bæta við svefnherbergi í þessu rými þar sem stofa rúmar vel setustofu og borðstofu.
Stofa: Er stór og skiptist í dag í setustofu og arinstofu. Gluggar til suðurs, vesturs og norðurs. Gegnheilt parket, aukin lofthæð og arinn. Útgengi á verönd til suðurs.
Eldhús: Var endurnýjað árið 2022 á virkilega smekklegan máta. Gegnheilt parket á gólfi. Eldhúsinnrétting frá GKS með eyju og tækjaskáp, tveir ofnar (annar combi), innbyggð uppþvottavél og spansuðuhelluborð með innbyggðri viftu. Gluggar til norðurs inn í bakgarð. 
Þvottaherbergi: Er staðsett inn af eldhúsi. Rúmgott með flísum á gólfi. Innrétting með upphækkun fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð og vaskur. Útgengi á afgirta verönd í bakgarði þar sem heitur pottur og útisturta er staðsett.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs og vesturs.
Herbergi II: Harðparketi á gólfi og gluggi til austurs.
Herbergi III: Harðparket á gólfi, frá herberginu er útgengt út á framhlið hússins. 
Svefnherbergisgangur með harðparketi. 
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum í "retróstíl". Flísalögð sturta, innrétting með góðu skápaplássi, salerni og handklæðaofn. Gluggi til austurs.

Bílskúr: Er 58,3 fermetrar að stærð. Tvær innkeyrsluhurðir með rafmagnshurðaopnun. Epoxy gólf og gluggar til norðurs. Inngangshurð að aftan (nær inngangi og hurð við svefngang). Upphitaður með heitu og köldu vatni. Rafhleðslustöð og vaskur. 
Geymsla I: Er staðsett inn af bílskúr með gluggum.
Geymsla II/Hitarými: Með sér hurð og er staðsett í horni bílskúrs bakvið geymslu I.
Útiskúr: Er tæplega 15 fermetrar á baklóð og er með rafmagni. 
Lóðin er 720,6 fermetrar að stærð, afar falleg og vel hirt. Mynstursteypt stétt og bílastæði fyrir framan bílskúr með snjóbræðslu. Útgengi úr stofu á fallega afgirta verönd með gróðri til suðurs. Hellulögð stétt meðfram húsi að geymsluskúr á baklóð. Afgirt viðarverönd á baklóð með heitum potti, útisturtu og geymslu undir grill. Rúmgott malarplan vestan megin á lóð sem nýtist sem bílastæði eða t.d. fyrir hjólhýsi/fellihýsi. 

Að sögn eiganda hefur húsið fengið eftirfarandi viðhald í gegn um árin(núverandi eigendur búið í húsinu síðan 2025): 
Árið 2026 var settur upp veggur og bætt við herbergi á svefnherbergisgangi, bæði herbergi voru svo í kjölfarið spörsluð og máluð. 
Árið 2022 var eldhúsið endurnýjað af fyrri eiganda.
Árið 2021 Húsið (steinn) var málað árið 2021 og árið 2020 var þak, þakkantur og gluggar málaðir. 
Árið 2018 var tæplega 15 fermetra útiskúr með rafmagni var komið fyrir á baklóð og sama ár var gegnheilt parket í húsinu pússað upp.
Árið 2017 var sett Epoxy á bílskúrsgólf. og árið 2015 var innrétting í þvottahúsi endurnýjuð. 

Allar nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:  Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.  Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. 
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.  Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og  ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.  Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.  Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/04/2025127.450.000 kr.153.000.000 kr.201.7 m2758.552 kr.
04/09/201444.700.000 kr.51.000.000 kr.201.7 m2252.850 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1973
58.3 m2
Fasteignanúmer
2078460
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
20.700.000 kr.

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Furuvellir 20
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Furuvellir 20
Furuvellir 20
221 Hafnarfjörður
187.3 m2
Einbýlishús
413
747 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbrún 28
Bílskúr
Heitur pottur
Opið hús:24. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunbrún 28
Hraunbrún 28
220 Hafnarfjörður
165.6 m2
Einbýlishús
614
764 þ.kr./m2
126.500.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47c
Skoða eignina Hjallabraut 47c
Hjallabraut 47c
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Þykkvaflöt 8
Bílskúr
Opið hús:23. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Þykkvaflöt 8
Þykkvaflöt 8
820 Eyrarbakki
204.4 m2
Einbýlishús
514
465 þ.kr./m2
95.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin