Fasteignaleitin
Skráð 27. ágúst 2026

Háteigsvegur 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
90 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
887.778 kr./m2
Fasteignamat
76.650.000 kr.
Brunabótamat
47.050.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1942
Jarðhæð
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2011466
Landnúmer
103221
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Skólp og neysluvatnslagnir endurnýjaðar frá húsi
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Þak málað árið 2014.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita / Skipt um hitagrind árið 2013.
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Athygli er vakin á því að herbergi í kjallara er skráð sem geymsla í fasteignaskrá en ekki sem íbúðarherbergi. Kaupendum er bent á að kynna sér sérstaklega samþykkta notkun, teikningar og skráningu eignarinnar. Núverandi eigendur hafa ekki búið í eigninni og eru kaupendur hvattir til að skoða ástand hennar vel og vandlega.

 
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna Háteigsveg 19, 105 Reykjavík.
Vel staðsett 90 m² íbúð í Norðurmýrinni. Eignin skiptist í 60,1 m² íbúð á aðalhæð ásamt 29,9 m² séreignarrýmum í kjallara. Þar er 16,8 m² herbergi, skráð sem geymsla (getur nýst sem útleiguening).
Áhugaverð eign með ýmsa möguleika til endurnóta á eftirsóttum stað.
Eignin skiptist í hol, eldhús, tvær samliggjandi stofur, hjónaherbergi og baðherbergi. Í kjallara eru herbergi, þvottahús með sauna, sturtu og salerni ásamt geymslu undir stiga.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 eða með tölvupósti á elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlegan inngang með íbúð á efri hæð.
Rúmgott hol með fataskáp.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og flísum á milli efri og neðri skápa. Bakaraofn og helluborð.
Tvær samliggjandi og bjartar stofur. Önnur stofan er nýtt sem svefnherbergi í dag.
Hjónaherbergi: Með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Með epoxí á gólfi og veggjum í kringum sturtu. Þar er sturta, salerni og lítil vaskinnrétting.
Harðparket er á gólfum íbúðarinnar að baðherbergi undanskildu.
Í séreign í kjallara:
Rúmgott þvottahús með flísum á gólfi. Að sögn seljanda var rýmið mikið endurnýjað árið 2013, meðal annars lagnir. Þar er sérsmíðaður saunaklefi að finnskri fyrirmynd þar sem loftun er um skorstein. Einnig er þar salerni, vaskur og flísalögð sturta. Einfalt gler er í glugga þvottahússins.
Við hlið þvottahússins er 16,8 m² parketlagt herbergi með glugga. Rýmið er skráð sem geymsla í fasteignaskrá en er í útleigu í dag.
Lítil geymsla undir stiga, skráð 1,0 m².

Íbúðinni fylgir bílastæði með snjóbræðslu þar sem rúmast tveir bílar. Útigeymsla og garður eru í sameign.

Eignin er vel staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Norðurmýrinni. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir, þjónustu og almenningssamgöngur. Miðborg Reykjavíkur, Klambratún og fjölbreytt útivist eru í þægilegu göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 eða með tölvupósti á elka@fstorg.is.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/11/202141.200.000 kr.54.900.000 kr.90 m2610.000 kr.
12/03/201836.400.000 kr.42.500.000 kr.90 m2472.222 kr.
11/02/201625.800.000 kr.35.500.000 kr.90 m2394.444 kr.
24/08/201117.250.000 kr.21.600.000 kr.90 m2240.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Óðinsgata 21
Skoða eignina Óðinsgata 21
Óðinsgata 21
101 Reykjavík
100.1 m2
Hæð
422
919 þ.kr./m2
92.000.000 kr.
Skoða eignina Hvassaleiti 58
Skoða eignina Hvassaleiti 58
Hvassaleiti 58
103 Reykjavík
77.3 m2
Fjölbýlishús
211
899 þ.kr./m2
69.500.000 kr.
Skoða eignina Grundarstígur 8
Opið hús:27. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grundarstígur 8
Grundarstígur 8
101 Reykjavík
73 m2
Fjölbýlishús
312
1000 þ.kr./m2
73.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
68.2 m2
Fjölbýlishús
211
1114 þ.kr./m2
76.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin