
Viltu fasteignir kynna bjarta og rúmgóða 93,2 m2 4ja herbergja íbúð á fimmtu hæð í lyftuhúsi við Sóltún 30.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.
Íbúðin samanstendur af forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í kjallara. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni og ??? merkt bílstæði við húsið ???
Íbúðin er skráð 86,5 m2 og geymsla í kjallara 6,7m2
Húsið hefur fengið reglulegt viðhald, síðustu ár hefur verið ( upplistun er ekki tæmandi)
2019 Skipt um gler í öllum íbúðum, suður-austur og vestur hlið.
Lofthreinsikerfi hreinsað.
Skipt um þakrennur norðan meginn.
Skipt um sauma á þaki og ryðvarðar lofttúður.
Endurbætur á snjóvörnum á þaki.
2022 – Skipt um tölvustýringu í lyftu.
2024 – Neysluvatnslagnir sandblásnar og fóðraðar.
Nánari lýsing:
Forstofa með góðum yfirhafnaskáp og fatahengi. Flísar á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu með efri og neðri skápum, bakaraofn og tengi fyrir uppþvottavél. Rafmagns helluborð og háfur. Dúkur á gólfi
Stofan er björt og opin inn í eldhús. Dúkur á gólfi. Gengið er út á svalir frá stofu sem snúa í suður.
Svefnherbergin eru þrjú, björt og öll með fataskápum og dúk á gólfi.
Baðherbergið er með innréttingu undir og við handlaug, baðkari með sturtuaðstöðu og salerni. Flísar eru á gólfi og veggjum að hluta.
Sérgeymsla er í kjallara skráð 6,7fm.
Þvottahús er sameiginlegt fyrir hverja hæð fyrir sig
Bílastæði eru við húsið fyrir íbúa og gesti þeirra og eitt bílastæði merkt íbúðinni. Rafhleðslustöðvar hafa verið settar upp. Tvær stöðvar fyrir fjóra bíla
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg á jaðhæð húsins
Gott tækifæri til að eignast bjarta og rúmgóða íbúð miðsvæðis í Reykjavík. Örstutt í verslun og þjónustu og útivist, bæði við ströndina og í Laugardal.
Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 88,2 | 108,9 | ||
105 | 98,1 | 97 | ||
105 | 94,1 | 94,5 | ||
105 | 93,2 | 76,9 | ||
110 | 92,5 | 86,9 | ||
110 | 84 | 82,4 |