** Opið hús miðvikudaginn 9.september frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Stórglæsileg og einstaklega vönduð 5 herbergja útsýnisendaíbúð með efstu hæð, ásamt bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Gerplustræti 21 í Mosfellsbæ. Íbúðin er skráð 146,8 m2 en þar af íbúð 134 m2 og geymsla 12,8 m2. Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, forstofu, tvö baðherbergi og stórt, bjart alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast fallega saman. Sérgeymsla er í kjallara og bílastæði í bílageymslu. Rúmgóðar svalir með svalalokun með glæsilegu útsýni. Fallegar innréttingar og gólfefni. Staðsetningin er einstaklega fjölskylduvæn. Leik- og grunnskóli er í næsta húsi og úr stofu og eldhúsi er horft yfir skólann. Jafnframt er stutt út í náttúruna og fallegar göngu- og útivistarleiðir liggja í allar áttir að helstu náttúruperlum bæjarins.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:Forstofa er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi nr. 1 er flísalagt frá gólfi upp í loft, með sturtu og handklæðaofni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Baðherbergi nr. 2 er flísalagt frá gólfi upp í loft, með sturtu og handklæðaofni.
Eldhús er einstaklega vandað og vel útbúið með HTH-innréttingum. Þar eru tvær innbyggðar XXL uppþvottavélar, bakaraofn og örbylgjuofn, auk stórs og rúmgóðs tækjaskáps. Í eldhúsinu er einnig stór tvöfaldur ísskápur með klakavél sem getur fylgt eigninni. Sérsmíðaður bekkur tengir eldhús og borðstofu fallega saman og setur skemmtilegan svip á alrýmið.
Stofa og
borðstofa eru inn af eldhúsi með gluggum á tveimur hliðum með glæsilegu útsýni sem gerir rýmið mjög bjart og skemmtilegt. Úr stofu og eldhúsi nýtur stórkostlegs útsýnis og þaðan er gengið út á fallegar,
yfirbyggðar svalir með svalalokun sem snúa í há suður. Svalirnar mynda skjólgott og notalegt framhald af alrými íbúðarinnar.
Sérgeymsla er í kjallara hússins með mikill lofthæð og hillurekkum sem get fylgt. Geymslan er skráð 12,8 m2.
Íbúðinni fylgir
bílastæði í lokuðum bílakjallara. Í bílakjallara er aðstaða til að þvo bíla.
Annað: Húsið var fullbúið í lok árs 2020 og er því um að ræða nýlegt og viðhaldslítið hús. Eignin einkennist af vönduðum frágangi, mikilli birtu, 280 cm lofthæð og stórkostlegu útsýni. Innfelld lýsing er í alrými og dimmerar í stofu, gangi og eldhúsi. Gólfhiti er í allri íbúðinni með Bluetooth-hitastýringu í öllum rýmum og því eru engir hefðbundnir ofnar í svefnherbergjum. Stigahúsið er snyrtilegt og vandað með góðum flísum í anddyri og kjallara en teppi á stigahúsi. Utanhúss er fasteignin álklædd vandaðri klæðningu og því viðhaldslítil. Snjóbræðsla er undir gönguleiðum.
Verð kr. 124.900.000,-