Novum fasteignasala kynnir íbúð á 9 hæð í lyftuhúsi við Ljósheima 22, 104 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 09-04 , fastanúmer 202-2283.Um er að ræða eign miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu í Glæsibæ og Skeifunni. Eignin býður upp á stórfenglegt útsýni og hefur ytrabirgði hússins verið endurnýjað töluvert. Íbúðin sjálf þarfnast viðhalds.
Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með skáp og þaðan er gengið inn í önnur herbergi íbúðarinnar, dúkur á gólfi.
Eldhús er með nýlegri innréttingu (helluborð og ofn?) og parketi á gólfi sem þarfnast viðgerðar. Tengi fyrir þvottavél og uppþvottavél í eldhúsi.
Stofa er rúmgóð og með frábæru útsýnis til austur til Bláfjalla. Gengið er út á svalir sem snúa í austur út frá stofu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með miklu skápaplássi. Útsýni er til suðurs. Parket á gólfi.
Baðherbergi er í miðju íbúðar og er nokkuð rúmgott. Með baðkari, vaski og salerni. Flísalagt gólf og veggir.
Geymsla: staðsett í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: eru sameiginleg í sameign.
Þvottahús: er sameiginlegt í sameign, einnig er tengi fyrir þvottavél í eldhúsi íbúðar.