Jón Smári Einarsson lgf. sími 8606400 og Fasteignaland kynna eignina Brekkustígur 10, 245 Sandgerði, 142 fm einbýlishús, þar af er bílskúr skráður 54,5 fm.
Húsið er á þremur hæðum. Eign með góða möguleika!
Lýsing:
Miðhæð:
Andyri með parketflísum á gólfi.
Baðherbergi með parket á gólfi, með lítilli innréttingu.
Eldhús með parket á gólfi, filmaðri innréttingu, þar sem gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa hafa partket á gólfi og þaðan er stigi upp í ris.
Ris:
Eitt rými með parket á gólfi.
Jarðhæð:
Gangur með með flísum á gólfi. Þaðan er stiga upp á miðhæð eignar, einnig er þaðan útgengt um flóttaleið.
Baðherbergi með flísum á gólfi, upphengdu salerni, sturtuklefa, vaski í innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél.
Svefnherbergi með parket á gólfi.
Bílskúr:
Skúrinn er tvískiptur og er fremri hluti hans með gólfi og panel í lofti, þar er lítill eldhúsinnrétting. Aftari hlutinn (minni) er óeinangraður og með engu gólfi.
Lóðin:
Stór verönd er við húsið og er henni skipt með skjólgirðingum. Lítill skúr/barnakofi er á verönd og opið geymslurými undir útitröppum. Bílastæði eru fyrir nokkra bíla fyrir framan bílskúr.
Ýmsar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni og skv. seljanda hefur eftirfarandi m.a. verið gert síðastliðin 10 ár:
* Ofnalagnir endurnýjaðar.
* Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
* Skólplagnir endurnýjaðar að hluta.
* Hús og þak málað 2026.
* Pallur um 70 fm, skjólveggir og barnakofi gerður.
* Útitröppur frá palli að inngangi endurnýjaðar.
* Hringstigi settur í kjallara upp á miðhæð.
* Timburgólf í forstofu endurnýjað.
* Innréttingar á salernum endurnýjaðar.
* Skipt um utanhússklæðningu að hluta (neðri hlutinn).
* Lagðar skólplagnir og vatn inn í bílskúr (eftir að klára og tengja).
* Rafmagn bætt við í kjalla og það yfirfarið á miðhæð.
* Skipt um fjóra ofna.
Eignin Brekkustígur 10 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 209-4685, merkt 01-01, birt stærð 142.0 fm.
Staðsetning og nærumhverfi:
Vel staðsett hús í rólegu umhverfi í Sandgerði.
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.