Fasteignaleitin
Skráð 24. sept. 2026

17. Júnítorg 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
65.1 m2
1 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.400.000 kr.
Fermetraverð
958.525 kr./m2
Brunabótamat
35.350.000 kr.
Byggt 2006
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22744943
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

**Fyrir 50 ára og eldri**

Garðatorg eignamiðlun kynnir til sölu einstaklega bjarta og fallega 65,1 fm herbergja íbúð með verönd í snyrtilegu lyftuhúsi, fyrir 50 ára og eldri, við 17. Júnítorg 3 í Sjálandshverfinu í Garðabæ. 


Hér er um að ræða vel skipulagða og rúmgóða eign í vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2006. Íbúðin er falleg og rúmgóð með stofu, borðstofu og eldhúsi í björtu alrými með útgengi á verönd. Íbúðin er skráð sem stúdíóíbúð en er í raun 2 herbergja þar sem búið er að stúka af svefnaðstöðu og útbúa herbergi. Húsið sjálft er vandað með snyrtilegri sameign, lyftu, fallegum garði og sameiginlegum bílastæðum fyrir framan húsið.

Bókið skoðun: Unnur, s: 8660507  eða  unnur@gardatorg.is

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Stofa, borðstofa og eldhús: Bjart alrými með fallegum gluggum, flísar og parketi á gólfi. Eldhúsinnrétting úr fallegri eik og gott skápapláss. Gengið er út á verönd úr stofu.
Svefnherbergi: Hefur verið stúkað af. Parketi á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott með fallegri innréttingu, góðu skápaplássi, sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Flísar á gólfi og veggjum. Inni á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu.
Breið hurðarop eru í íbúðinni og gott aðgengi fyrir hjólastóla.
Í kjallara er sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Mörg sameiginleg bílastæði eru fyrir framan húsið.

Þetta er skemmtileg eign á þessum vinsæla og góða stað í hjarta Sjálandshverfisins þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu. Jónshús er handan götunnar en þar hefur Félag eldri borgara í Garðabæ haldið úti öflugu félagsstarfi um árabil. Íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Ásgarði eru í göngufæri og stutt er í matvöruverslanir, veitingastaði, heilsugæslu, bókasafn og apótek í Litlatúni og á Garðatorgi. Í nágrenninu eru fallegar gönguleiðir um Sjálandið, meðfram strandlengjunni og nærliggjandi svæði.

Nánari upplýsingar veitir: 
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteinga- og skipasali, s:8660507 eða unnur@gardatorg.is

 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Garðatorg eignamiðlun ehf
http://www.gardatorg.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 14 (302)
Opið hús:18. okt. kl 14:00-14:30
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (302)
210 Garðabær
70,1 m2
Fjölbýlishús
211
1054 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 1
Opið hús:18. okt. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Eskiás 1
Eskiás 1
210 Garðabær
70,2 m2
Fjölbýlishús
312
1024 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 13
Bílastæði
Skoða eignina Holtsvegur 13
Holtsvegur 13
210 Garðabær
83,6 m2
Fjölbýlishús
211
836 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Þorraholt 19B (104)
Bílastæði
Opið hús:18. okt. kl 13:45-14:15
Þorraholt 19B (104)
210 Garðabær
95,4 m2
Fjölbýlishús
312
1016 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin