NÝTT Í SÖLU
KRÍUÁS 16, ARNARNESI, GARÐABÆ. GLÆSILEGT 366 FM NÝLEGT EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM RÓLEGUM STAÐ INNST Í LOKAÐRI GÖTU.
Pantið einkaskoðun hjá Ingólfi Gissurarsyni lg.fs. S:896-5222 ingolfur@valholl.is
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Glæsilegt og velskipulagt alls 365,8 fm einbýlishús á tveimur hæðum (314,8 fm íbúð og 51 fm bílskúr). Innsta hús í botnlangagötu. Húsið teiknuðu Arkitektarnir Vífill Magnússon og Halla Hannesdóttir. Lóðina hannaði Stanislas Bohic landslagsarkitekt. Mjög gott skipulag. Glæsilegt nýlegt eldhús og góðar stofur, útsýni til norðurs og vesturs, alls 5 stór svefnherbergi, þar af hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi. Alls tvö baðherbergi og gestasnyrting. Tvöfaldur rúmgóður bílskúr (innangengt í hann). Vönduð og velskipulögð eign. Sjón er sögu ríkari. Sjá myndbandSKIPULAG: Mikið, skjólsælt skyggni framan við aðalinngang.
Forstofa með skápum, innbyggð dimmanleg ljós í gólfi. Flísalögð
gestasnyrting innaf forstofu með vaskinnréttingu og glugga. Rúmgott
hol með fallegum þakglugga. Glæsilegt strórt frekar nýlegt
eldhús með stóru deski og miklu skápaplássi. Sérsmíðuð innrétting, dökkbæsuð eik, góðir búrskápar, Miele tæki, m.a. span helluborð, innfeldur gufugleypir í borð, innbyggð uppþvottavél og tvöf.ísskápur m.frysti og fl. Granít borðplötur.
Borðstofa og svo
stofan í beinu frammhaldi. Upptekin loft. Hljóðeinangrandi plötur í loftum í eldhúsi og borðstofu. Útgengt úr borðstofu útá rúmgóðar
vestur og norður svalir með fallegu útsýni til Arnarnesvogs og Kópavogs. Stofan er með mjög fallegum
arin sem er steinklæddur ásamt skorsteini. Innaf holi er stórt
herbergi og einnig
stórt hjónaherbergi með afar rúmgóðu
fataherbergi og glæsilegu flísalögðu
baðherbergi með nuddbaðkari, stórri sturtu, innréttingu, handklæðaofni, vegghengdu salerni og tveimur gluggum. Innaf holinu er líka
þvottaherbergi með miklum skápum og innréttingu m.vaski. Gengið úr þvottaherberginu í stóran og
rúmgóðan tvöfaldan bílskúr, flísalagður með sjálfvirkum opnurum á báðum hurðum. Gönguhurð á vesturhlið. Mjög fallegur hringlaga stigi úr holi niður á neðri hæðina.
Neðri hæð: Stór
sjónvarpsstofa með útgengt útí bakgarðinn. Fallegar sérsmíðaðar innréttingar (dökkbæsuð eik, líkt og í eldhúsi). Alls
3 mjög stór svefnherbergi, öll með skápum. Útgengt úr einu herberginu útí bakgarðinn.
Baðherbergi flísalagt með sturtu, innréttingu, skápum, handklæðaofni, vegghengdu salerni og glugga. Gluggalaus
geymsla með hillum. Stór afgirtur timbur sólpallur að sunnan og vestanverðu,. Hellulagt og gras bakatil (vestan+norðanverðu). Lóð í góðri rækt, e.t.v. komin tími á að lækka / fella einhver tré að norðanverðu sem hafa vaxið uppí útsýnið.
GÓLFEFNI: Flísar á forstofu, holi, eldhúsi, þvottaherbergi, baðherbergjum og snyrtingu. Gegnheilt kirsuberja parket á öðrum gólfum.
ANNAÐ: Eftirfarandi upplýsingar eru frá seljanda. Byggingarleyfi 2001, húsið byggt og klárað ca 2004. Steypt hús með steiningu á útveggjum, stallajárni á þaki. Gólfhiti er í eldhús og baðherbergjum. Gluggar og allar útihurðir eru úr gegnheilum við.
--------- GLÆSILEGT VELSKIPULAGT EINBÝLISHÚS Á EINSTÖKUM STAÐ. -------
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S: 896-5222 ingolfur@valholl.is
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 37 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hringið þegar ykkur hentar í síma 896-5222.
VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SKV, GREININGU CREDITINFO, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR.