Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 32, 640 Húsavík.Um er að ræða vel skipulagða 90,8 M² íbúð á annarri hæð í fimm íbúða fjöleignarhúsi. Eignin er vel staðsett og stutt í alla helstu þjónustu. Árið 2019-20 var baðherbergið endurnýjað ásamt þvottahúsi, fataskápum og gólfefnum. Íbúðin er með sér stigapalli á annarri hæð í bakhúsinu.
Nánari lýsing:Forstofa/hol, stofa, eldhús, tvö svefnherbergi, þvottahús, búr og baðherbergi. Forstofa/hol: þegar komið er inn tekur við parketlagt hol sem tengir saman öll önnur rými eignarinnar, í holinu er góður speglaskápur.
Stofa: er rúmgóð og hentar bæði undir sjónvarpsstofu og borðstofu. Útgengt er út á SV- svalir úr stofunni.
Eldhús: Er með hvítri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum. Við endan á innréttingunni er borðkrókur.
Búr: milli eldhús og hols er búr sem gefur eldhúsinu gott geymslupláss.
Tvö svefnherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott og svo er eitt minna svefnherbergi við hliðin á hjónaherberginu.
Þvottahús: er með skápainnréttingu með vask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og svo bekkplata.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, "walk in" sturta, hvít vaska innrétting, speglaskápar ofan við innréttingu og svo vegghengd wc.
Geymsla: sérgeymsla tilheyrir íbúðinni sem er staðsett í kjallara.
Annað:Skipt var um þakjárn á húsinu 2009 og hurð í forstofu í stigagangi 2011.
Árið 2020 var skipt um teppi á stigagang ásamt því að hann var málaður.
Árið 2020 var baðherbergið endurnýjað, harðplastparket sett á hol,stofu og svefnherbergi, ásamt því að fataskápar voru endurnýjaðir.
Árið 2020 var sett ný gólfefni á þvottahúsið ásamt nýrri innréttingu.
Starfandi húsfélag er í húsinu og hússjóður. Eignaskiptayfirlýsing er til fyrir húsið.
Garðurinn er sameiginlegur og er að mestu grasfletir S. og V. megin og með stórum runnum út við lóðarmörk. Malarborið bílaplan við húsið og nýlegt, steypt ruslatunnuskýli. Hús var málað að utan árið 2018.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á