LANDMARK fasteignamiðlun, Monika Hjálmtýsdóttir og Sigurður Samúelsson, lögg. fasteignasalar kynna: Fallega þriggja herbergja 82,8 fm íbúð í kjallara að Hjarðarhaga 36 í Reykjavík. **Bókið skoðun hjá
monika@landmark.is eða í síma: 823-2800 og hjá
ss@landmark.is eða í síma 896-2312**
Nýtt parket er á stofu. Íbúðin var mikið endurnýjuð veturinn 2010-2011, skipt var um flestar lagnir, gólf endurnýjað og flotað, settar nýjar innréttingar, hurðir og gólfefni. Þá voru milliveggir endurnýjaðir og hurðir. Frárennslislagnir og lagnir endurnýjað árið 2011 og frárennsli út í götu árið 2013. Árið 2013 voru þak og þakrennur í fjölbýlishúsinu endurnýjaðar og sett dren. Allar raflagnir voru endurnýjaðar árið 2011 og skipt um aðaltöflu árið 2015.Anddyri og gangur er með parketi á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi.
Svefnherbergi I er með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með hornglugga, stórum fataskáp, parket á gólfi.
Eldhús er með eikar innréttingu með góðu skápaplássi, bakarofni, helluborði og gufugleypi yfir. Hægt er að koma fyrir tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi. Borðkrókur í eldhúsi.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara með sér tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla fylgir eigninni, staðsett undir stiga sem ekki telst í heildarfermetrum þar sem lofthæð er innan við 1,8m.
Bílskúr merkt 050101, 24 fm að stærð er sameign allra í Hjarðarhaga 36-42 og er notaður sem
hjólageymsla. Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali monika@landmark.is sími 823-2800
Sigurður Samúelsson, lögg. fasteignasali ss@landmark.is sími 896-2312Láttu okkur selja fyrir þig.
Hafðu samband og við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingarLandmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat