LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Mjög falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á 5. hæð með fallegu útsýni við Austurströnd 14 á Seltjarnarnesi. Gengið er inn frá Nesvegi og því er aðeins gengið upp tvær hæðir. Eignin er skráð skv HMS: 55,6 fm og skiptist þannig að íbúðin sjálf er 50,8 fm og geymslan 4,8 fm. Húsið var sprunguviðgert og málað árið 2023 - mjög snyrtileg og vel umgengin sameign - fallegt útsýni frá stofu og svefnherbergi. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðastliðnum árum t.a.m gólfefni (árið 2025), baðherbergi (árið 2024), vatnslagnir á baðherbergi og í eldhúsi - gluggar og gler í svefnherbergi og nýlegt gler í stofu ásamt fleiru.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í
forstofu, fataskápur. Á vinstri hönd við inngang er
eldhús með fallegri uppgerðri eldri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa. Nýleg blöndurtæki, vaskur, vifta og helluborð. Björt
stofa með útgangi út á svalir með fallegu útsýni.
Rúmgott svefnherbergi með góðum skápum. Á hægri hönd við inngang er flísalagt
baðherbergi í hólf og gólf með neðri skáp, Walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Sérgeymsla á 2. hæðinni. Sameiginlegt þvottahús á 4. og 5. hæð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Gólfefni íbúðar: parket og flísar.
ÞETTA ER EINSTAKLEGA FALLEG OG VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ Á RÓLEGUM, BARNVÆNUM OG EFTIRSÓTTUM STAÐ Á SELTJARNARNESI. STUTT Í SKÓLA, LEIKSKÓLA OG ALLA ÞJÓNUSTU.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.is Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat