ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu reglulega fallegt 158,8 fm steypt parhús ásamt bílskúr að Heiðarholti 4 í Garði, Suðurnesjabæ.
Gengið er inn í rúmgóða forstofu og þaðan inn í bjart og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Eignin er með fjögur svefnherbergi, glæsilegt endurnýjað baðherbergi og gott þvottahús. Útgengt er á rúmgóða baklóð með um 100 fm palli og heitum potti.
Bílskúr fylgir eigninni með góðu geymsluplássi.
Húsið var múrað og málað að utan sumarið 2025.
Nánari upplýsingar veitir:
Halla Vilbergsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 7727930, tölvupóstur halla@allt.is.
Unnur Svava Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali, 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.is*** Björt og rúmgóð eign með stórum gluggum og mikilli náttúrulegri birtu.
*** Fallegt opið alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa renna saman.
*** Fjögur svefnherbergi og góðir fataskápar.
*** Glæsilegt baðherbergi, endurnýjað árið 2022.
*** Útgengi á verönd og lóð frá stofu og hjónaherbergi.
*** Um 100 fm pallur með heitum potti á baklóð.
*** Gott þvottahús með vandaðri innréttingu.
*** Bílskúr með rafdrifinni hurð og geymslulofti.
*** Hiti er í öllum gólfum eignarinnar, parket og flísar á gólfum
*** Innkeyrsla er hellulögð og með hitalögnVel skipulögð og fjölskylduvæn eign með frábærri inni- og útiaðstöðu.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Er mjög rúmgóð og hefur flísar á gólfi og góðan fataskáp.
Stofa/borðstaofa: Hefur parket á gólfum, stóra glugga og hurð út á verönd
Eldhús: Er opið við stofu og hefur parket á gólfum og góða innréttingu ásamt eyju.
Baðherbergi: Er glæsilegt og var allt tekið í gegn 2022, flísar á gólfi og veggjum, stílhrein innrétting, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Hefur parket á gólfi, góðan fataskáp og hurð út á lóð.
Barnaherbergin: Eru þrjú og öll hafa þau parket á gólfum og fataskápar í tveimur þeirra.
Þvottahús: Hefur flísar á gólfi, góða innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þvottahús er inn af bílskúr og er hurð frá þvottahúsi út á
baklóð með 100 fm palli ásamt heitum potti.Bílskúr: Hefur málað gólf, rafmagnsopnun á hurð og er geymslu loft yfir hluta af bílskúr.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.