ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Strandvegur 18, 210 Garðabær, birt stærð 63.7 fm.Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin var tekin í gegn 2021 og er einstaklega vel skipulögð, með sérþvottahúsi innan íbúðar og svölum sem snúa í suður. Fallegur og skjólgóður garður fylgir húsinu. Tilvalin fyrstu kaup!
Skipulag eignar: Forstofa, eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús, auk rúmgóðrar sérgeymslu í sameign.
Nánari upplýsingar veitir/veita: Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Fataskápur sem nær upp í loft.
Eldhús: Nýleg innrétting upp í loft, spanhelluborð, gler á milli efri og neðri skápa og innfelld lýsing.
Stofa: Bjart rými með harðparketi á gólfi. Útgengt er á suðursvalir.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi, rennihurð og fataskápur á heilum vegg sem nær upp í loft.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir að mestu. Baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofn.
Þvottahús: Innan íbúðar, með flísum á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign, skráð 8,9 fm. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
StaðsetningStutt er í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, sundlaug og íþróttaaðstöðu, auk þess sem strætó stoppar í næsta nágrenni.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.