NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SKOÐAÐU EIGNINA Í 3VÍDD (ekki er þörf á sérstöku forriti)
RE/MAX ásamt GUÐNÝJU ÞORSTEINS löggiltum fasteignasala kynnir í einkasölu: Fallega 3gja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi með
stæði í bílakjallara í Norðlingaholtinu.
Íbúðin er vel skipulögð og björt með útsýni frá svölum og stofu yfir Elliðavatn og fjallahringinn, úr herbergjum er útsýni til Esjunnar.
Aðeins eru 2 íbúðir á hæðinni.Samkvæmt HMS er íbúðin 89,2fm auk 7fm geymslu samtals
96,2fm. Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 74.845.000kr.
Eignin samanstendur af: Forstofu, holi, eldhúsi, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu ásamt bílastæði í kjallara. Gólfefni er viðarparket ásamt flísum.
Nánari lýsing:Forstofa: Er með þreföldum fataskápum sem ná upp í loft. Flísar á gólfi.
Hol: Er rúmgott. Parketi á gólfi.
Eldhús: Er með góðri innréttingu, bakaraofni í vinnuhæð ásamt stein á borðum. Parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa: Eru í sameiginlegu opnu, björtu og flæðandi rými með útgangi út á svalir.
Svalir: Eru 7,3fm að stærð og snúa í suðaustur með frábæru útsýni.
Herbergi I: Er 13fm að stærð með sexföldum skápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi II: Er 8,4m að stærð með tvöföldum skápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Er með innréttingu, baðkari með sturtu í ásamt flísum á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Er í sér rými með flísum á gólfi.
Bílastæði: Er í upphituðum kjallara, merkt B36.
Geymsla: Er 7fm að stærð í sameign ásamt vagna og hjólageymsla.
Staðsetning eignar er mjög góð þar sem stutt er í skóla en ekki þarf að fara yfir götu. Fylkir (fimleikar, karate, parkur, rafdeild) ásamt dansskóla ofl. er í nágrenninu. Afar stutt er í fallegar gönguleiðir eins og Rauðavatn, Heiðmörk, Elliðaárdalinn og í Víðidal.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.