Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2026

Góðakur 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
361.8 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
420.000.000 kr.
Fermetraverð
1.160.862 kr./m2
Fasteignamat
336.900.000 kr.
Brunabótamat
211.300.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2011
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Hleðslustöð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2323236
Landnúmer
187245
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já, tvennar svalir, aðrar þeirra flottar gagnvart sól með morgun bollanum og hinar opnar í suð-vestur.
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Glæsilegt og einstaklega vandað 361,8 fm. einbýlishús á pöllum við Góðakur 8, 210 Garðabæ, þar af er innbyggður bílskúr 33,3 fm.

Frábær staðsetning innst inn í friðsælum botnlanga með stór, opin og gróin svæði allt í kring. Einstök lóð og virkilega falleg 964,0 fm eignarlóð.

Garðurinn er gróinn og einstaklega skjólgóður með niðurgrafinn harðviðar verönd með heitum potti, sér úti borðstofusvæði með bekk og yfirbyggt að hluta. Öll veröndin er svo umvafinn fallegum gróðri. Virkilega hlýlegt og fallegt. 

Eignin einkennist af mikilli lofthæð, vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, rúmgóðum og björtum vistarverum og fallegu útsýni yfir gróinn dal og læk. Eignin býður upp á samtals fimm svefnherbergi, þar af tvær rúmgóðar hjónasvítur, þrjú baðherbergi auk gestasalernis. Stórt og glæsilegt eldhús tengist fjölskyldurými, stofu og borðstofu og sér skrifstofu rými. Arinn er í stofu og tvennar svalir eru á efri hæð hússins, annars vegar morgunsvalir og hins vegar síðdegissvalir. Bílskúr og rúmgóð geymslurými eru einnig til staðar í húsinu.

Húsið var teiknað af Sigurði Hallgrímssyni, arkitekt hjá Arkþing, og Rut Káradóttir sá um innanhússhönnun. Mikill metnaður hefur verið lagður í efnisval og útfærslur hússins.

* Fimm svefnherbergi, þar af tvær hjónasvítur
* Þrjú baðherbergi auk gestasalernis
* Glæsilegt sérsmíðað eldhús með Miele-tækjum
* Rúmgóðar stofur með mikilli lofthæð, arinn og fallegu útsýni
* Tvennar svalir – morgun- og síðdegissvalir
* Stór og einstaklega skjólgóð verönd með heitum potti
* Sérsmíðaðar innréttingar og vandað efnisval
* Rafhleðslustöð, góð bílastæði og geymsluskúr á lóð 

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskápum og litlu fataherbergi með sérsmíðuðum innréttingum. Innangengt er úr anddyri í 33,3 fm. bílskúr með heitu og köldu vatni. Á þessari hæð er stór og rúmgóð hjónasvíta með sér baðherbergi, innréttingu og sturtu. Úr svítunni er gengið út á litla verönd sem snýr til vesturs. Frá holi er gengið upp hálfa hæð þar sem meginrými hússins eru. Þar eru eldhús, fjölskyldu- og sjónvarpsrými, stofa, borðstofa, skrifstofa, gestasalerni og tvennar svalir. Eldhúsið er sérlega glæsilegt með sérsmíðaðri dökkbrúnni eikarinnréttingu, steini á borðplötum og miklu skápaplássi. Stór eyja er í miðju eldhússins með gashelluborði. Uppþvottavél, tveir ísskápar og vínskápur eru innbyggð og tveir bakarofnar ásamt gufuofni eru í vinnuhæð. Öll eldhústæki eru frá Miele. Eldhúsið tengist rúmgóðu fjölskyldu- og sjónvarpsrými með gott pláss fyrir hringborð. Aðliggjandi er falleg skrifstofa með sérsmíðuðum innréttingum og glerhurðum. Skrifstofan er ekki innifalin í birtum fermetrum hússins þar sem rýmið var upphaflega svalir sem síðar var breytt í skrifstofu. Stofa og borðstofa eru samliggjandi, rúmgóð og björt. Fallegur arinn setur sterkan svip á rýmið og nýtur sín vel bæði úr stofu og borðstofu. Þar eru einnig sérsmíðaðar bókahillur, steypt arinhilla og niðurtekið loft. Úr stofurýminu nýtur fallegs útsýnis yfir gróinn dalinn og lækinn neðan við húsið. Gestasalerni á hæðinni er með upphengdu salerni, innbyggðum blöndunartækjum og fallegum sérsmíðuðum vaski.

Á neðri hæð er rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi. Baðherbergið er með bæði sturtu og baðkari ásamt sérsmíðuðum innréttingum. Þaðan er útgengt á verönd og að heitum potti. Frá fataherberginu er innangengt í þvottahús með innréttingum. Einnig er sér inngangur í þvottahúsið frá gangi. Þrjú önnur svefnherbergi eru á hæðinni ásamt baðherbergi með sturtu, sérsmíðaðri innréttingu og steini á borði. Rúmgóð geymsla er einnig á hæðinni. Gott sjónvarps- og fjölskyldurými  skilur að barnaherbergin frá hjónasvítunni og þaðan er gengið út á stóran pall sem snýr til suðvesturs. 

Lóðin er 964,0 fm. gróin og einstaklega vel staðsett á eignarlóð við fallegan gróinn dal og læk. Stór niðurgrafinn verönd sem er umvafinn gróðri og því einstaklega skjólgóð. Þar er heitur pottur og gott geymslupláss. Þar er einnig dúkkuhús sem fellur vel inn í umhverfið. Stór og gróinn garður umlykur húsið og skapar mikið næði.

Í húsinu er ljósastýringarkerfi sem stýrir lýsingu og rafmagni. Næg bílastæði eru fyrir framan hús og bílskúr auk þess sem góð bílastæði eru í botnlanganum. Rafhleðslustöð er utan á bílskúr. 

Til upplýsingar, þá létu núverandi eigendur mála allt húsið nýlega, bæði að innan og utan. Byggðu skyggni yfir innganginn með viðarklæðningu og lýsingu í. Á sama tíma voru allar hurðir og innréttingar lagfærðar og endurbættar þar sem þörf var talin á,. Allir gluggar voru yfirfarnir, skipt var um lamir og gluggjárn þar sem til þurfti. Rafkerfi hússins var allt yfirfarið, öryggiskerfi endurbætt og allt timburverk í garðinum yfirfarið. Húsið lítur mjög vel út að sjá.

Einstaklega vönduð og vel hönnuð fjölskyldueign á fallegum og skjólgóðum stað þar sem húsið, garðurinn og náttúran mynda eina heild. Stutt er í leiksskóla, skóla, íþróttastarf, verslanir og almenningssamgöngur.

Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-






 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/06/2025290.500.000 kr.380.000.000 kr.361.8 m21.050.304 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2011
33.3 m2
Fasteignanúmer
2323236
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.350.000 kr.

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Árakur 9
Bílskúr
Skoða eignina Árakur 9
Árakur 9
210 Garðabær
248.9 m2
Raðhús
514
828 þ.kr./m2
206.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 39
Bílskúr
Skoða eignina Vorbraut 39
Vorbraut 39
210 Garðabær
270 m2
Raðhús
724
848 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 37
Bílskúr
Skoða eignina Vorbraut 37
Vorbraut 37
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Tónahvarf 3
Skoða eignina Tónahvarf 3
Tónahvarf 3
203 Kópavogur
350.2 m2
Atvinnuhúsn.
4
Fasteignamat 112.750.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin