Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Brekkuhvammur 16

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
202.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
617.400 kr./m2
Brunabótamat
107.200.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20741859
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir til sölu fallegt, bjart og afar vel skipulagt einbýlishús á einni hæð við Brekkuhvamm í Hafnarfirði. Eignin er 202,3 fm, þar af 30,8 fm bílskúr, og stendur á 678 fm gróinni lóð á rólegum og fjölskylduvænum stað. Eignin er laus til afhendingar. Húsið var hannað og teiknað af Herði Ágústssyni. Um framkvæmdir á húsinu á undanförnum árum sjá texta hér neðar.

Húsið er einstaklega vel skipulagt með rúmgóðum sameiginlegum rýmum og góðri tengingu út í fallegan garð. Snjóbræðsla er í stétt fyrir framan hús og fyrir framan bílskúr. Í garði er ca.12 fm geymsluskúr, einangraður og með rafmagni og rafmagnsofn sem nýtist vel sem geymsla eða vinnuaðstaða (skúrinn er ekki innifalinn í skráðum fermetrum eignarinnar). 

Nánari lýsing: 
Komið er inn í flísalagða forstofu sem tengist áfram holi sem er parketlagt. Þar er gesta salerni.
Frá svefngangi er aðgengi að geymslu með fataskápum og rúmgóðu flísalögðu þvottaherbergi. Þar er góð innrétting, vinnuborð og útgengi út í garð.
Eldhúsið er bjart og rúmgott, með flísalögðu gólfi, snyrtilegri innréttingu og góðu plássi fyrir borðaðstöðu – notalegt rými sem nýtist vel fjölskyldu í dagsins önn.
Samliggjandi stofur eru mjög rúmgóðar og bjartar, parketlagðar og með góðu flæði. Útgengi er úr stofum út í garð sem gerir tengingu inni og úti einstaklega góða.
Svefnherbergjahluti er vel afmarkaður.
Hjónaherbergi er rúmgott, parketlagt og með fataskápum.
Barnaherbergin voru upphaflega þrjú, en tvö þeirra hafa verið sameinuð í eitt stórt herbergi – auðvelt er að breyta aftur í tvö hefðbundin barnaherbergi. Öll herbergi eru parketlögð.
Baðherbergi er snyrtilegt og vel búið, með glugga, flísum á gólfi og veggjum, vegghengdu salerni, handklæðaofni og flísalagðri sturtu með gleri.
Bílskúr: 30,8 fm bílskúr, snyrtilegur og bjartur með gluggum og göngudyrum út á veröndina í garðinum. Hitaveita og rafmagn er í bílskúrnum, og hentar hann vel sem vinnustofa. 

Lóð & umhverfi
Lóðin er skráð hjá fasteignaskrá HMS 678 fm. Hún er gróin, falleg og afgirt að stórum hluta – kjörin fyrir fjölskyldulíf, leik og útiveru.
Úr stofunni er útgengt á stóra og skjólgóða verönd sem hentar vel fyrir grill og að borða úti.
Snjóbræðslukerfi er undir bílastæðinu og gangstéttinni inn á lóðinni frá götunni að bílskúrnum og að útidyrunum.

Framkvæmdasaga: 
- Baðherbergið endurnýjað kringum 2007. Þá var einnig skipt út báðum stóru gluggunum og svalahurð (tréverk og gler) í stofu. Einnig var skipt um glugga í litla barnaherberginu. Nýr ofn var settur undir stofugluggann garðmeginn. Rafmagnstafla var endurnýjuð og rafmagnsleiðslur yfirfarnar. Þá var útbúin verönd garðmeginn og endurnýjað þakið á bílskúrnum. 
- Klóaks- og frárennslislagnir endurnýjaðar meðfram húsi fyrir um 10 árum.
- Skipt var um allt bárujárnið á þakinu og einangrun og þétting bætt fyrir um 10 árum.
- Nýlega var skipt um ofn undir glugga við útidyr.

Eignin er staðsett á rólegum og eftirsóttum stað við Brekkuhvamm í Hafnarfirði, þar sem stutt er í miðbæinn, leikskóla, skóla, verslanir, sundlaugar og íþróttaaðstöðu og alla helstu þjónustu.
 
Allar nánari upplýsingar veita:
Úlfar Þór Davíðsson í síma 788-9030,  ulfar@fastborg.is
Ingimar Ingimarsson í síma 861-8458,  ingimar@fastborg.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Borg fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Huldubraut 21
Opið hús:07. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Huldubraut 21
Huldubraut 21
200 Kópavogur
223.3 m2
Einbýlishús
524
828 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
127.1 m2
Fjölbýlishús
423
936 þ.kr./m2
118.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
114.3 m2
Fjölbýlishús
322
945 þ.kr./m2
107.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
109 m2
Fjölbýlishús
322
954 þ.kr./m2
103.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin