Stór og góð tveggja herbergja íbúð á 8.hæð með útsýni. Íbúðin skiptist í forstofugang, baðherbergi, opið eldhús með borðkrók, herbergi með svaladyrum út á suð-austur/svalir. Einnig er sameiginlegt þvottaherbergi á hæðinni og sér geymsla í kjallara.
Samkvæmt HMS er birt stærð íbúðarinnar 68,9 fm þ.a. er geymsla íbúðarinnar 6,4 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofugang með gólfflísum og fataskáp. Baðherbergi er með baðkari, baðinnréttingu og eru flísar á gólfi og við baðkar. Opið eldhús og borðkrókur með gólfflísum og hvítri eldhúsinnréttingu. Stórt herbergi með gólfdúk og fataskáp. Svaladyr eru úr herbergi út á svalir sem snúa til austurs og vesturs. Parketlögð stofa. Á hæðinni er sameiginlegt þvottaherbergi og í kjallara er geymsla íbúðarinnar. Komin er mynddyrasími í anddyrið en íbúar verða að kaupa og setja upp myndsímatæki í sínum íbúðum ef þeir vilja geta séð þá sem hringja. Húsið er í góðu ástandi og er frábærlega vel staðsett. Hiti er í stétt að verslunarmiðstöðinni í Mjódd.
(ath. grunnteikning af íbúðinni hér á netinu er ónákvæm m.a. vantar að sýna svalagólf við suðurhlið).
Húsfélagið er með leigutekjur af útleigu jarðhæðar (sjá ársreikning)
Kvöð / kvaðir
Eignaskiptayfirlýsing sjá skjal nr. A-014983/1999. Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu. Lóðarleigusamningur sjá skjal nr. E-007212/1982. 1.134 FM LEIGULÓÐ TIL 75 ÁRA FRÁ 1/1 81. HEILDARLÓÐ FYRIR NR. 8 OG 10 HLUTDEILD Í BÍLASTÆÐALÓÐ FYLGIR. KVAÐIR UM BÍLAST, OG ALM.UM LAGNIR BORGARSJ. OG SKILM.
Stór og góð tveggja herbergja íbúð á 8.hæð með útsýni. Íbúðin skiptist í forstofugang, baðherbergi, opið eldhús með borðkrók, herbergi með svaladyrum út á suð-austur/svalir. Einnig er sameiginlegt þvottaherbergi á hæðinni og sér geymsla í kjallara.
Samkvæmt HMS er birt stærð íbúðarinnar 68,9 fm þ.a. er geymsla íbúðarinnar 6,4 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofugang með gólfflísum og fataskáp. Baðherbergi er með baðkari, baðinnréttingu og eru flísar á gólfi og við baðkar. Opið eldhús og borðkrókur með gólfflísum og hvítri eldhúsinnréttingu. Stórt herbergi með gólfdúk og fataskáp. Svaladyr eru úr herbergi út á svalir sem snúa til austurs og vesturs. Parketlögð stofa. Á hæðinni er sameiginlegt þvottaherbergi og í kjallara er geymsla íbúðarinnar. Komin er mynddyrasími í anddyrið en íbúar verða að kaupa og setja upp myndsímatæki í sínum íbúðum ef þeir vilja geta séð þá sem hringja. Húsið er í góðu ástandi og er frábærlega vel staðsett. Hiti er í stétt að verslunarmiðstöðinni í Mjódd.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.