Fasteignaleitin
Skráð 18. sept. 2024

Hringbraut 119

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
51.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
972.710 kr./m2
Fasteignamat
50.400.000 kr.
Brunabótamat
33.700.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2024696
Landnúmer
105924
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Raflagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Frárennslislagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Þak
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir frá stofu/borðstofu
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Heildarhúsfélag
Yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.
Á aðalfundi 2023 var samþykkt að fara í þær framkvæmdir sem komu fram í Ástandskýrslu Verksýnar. Sjá aðalfundargerð 26.01.2023. Á aðalfundi 2026 kom fram að framkvæmdunum var ekki að fullu lokið og að það þarf að skoða þær aftur á þessu ári, en ekki er gert ráð fyrir auka innheimtu vegna þessara framkvæmda. Sjá aðalfundargerð 20.01.2026.

Fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélags.
Á húsfundi í september 2025 kom fram að vegna galla í grunnmálingu á þaki þarf að mála þakið aftur. Einnig var rætt um eyðu í hitaspíral og stjórn falið að skila kostnaðaráætlun á viðgerð á næsta aðalfundi. Sjá húsfundargerð 03.09.2025.

Úttekt hefur farið fram á ástandi hússins: Já, ástandsskýrsla Verksýnar, febrúar 2022

Lóðarfélag
Á húsfundi í febrúar 2025 var samþykkt að leita tilboða í framkvæmdir á þakplötu bílageymslu byggðum á úttekt og kostnaðarmati. Sjá húsfundargerð 04.02.2025.
Á aðalfundi 2026 kom fram að það er enn verið að vinna viðgerð á plötu ofan við bílskýli en gert er ráð fyrir að inneign í framkvæmdasjóði dugi fyrir framkvæmdunum. Sjá aðalfundargerð 21.01.2026.
 
Gallar
*Fasteignasali vill hvetja kaupendum á að skoða mögulegan raka eða leka í geymslu.
Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á fimmtu og efstu hæð í lyftuhúsi að Hringbraut 119 í vesturbænum. Íbúðin er á tveimur hæðum og að sögn eiganda er stór hluti hennar undir súð virkar gólfflötur stærri en uppgefin fermetratala. Íbúðin skiptist í anddyri/hol, eldhús, alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og rúmgóða efri hæð sem rúmar svefnherbergisloft. Frá stofu er útgengt á svalir með skemmtilegu útsýni. Stór sérgeymsla með mikilli lofthæð er staðsett á jarðhæð sameignar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða á ragnar@fstorg.is

Sækja söluyfirlit HÉR

Viðhald íbúðar og sameignar:
Að sögn eiganda hafa miklar viðgerðir hafa átt sér stað á húsinu að utan sem og innan. Íbúðin var mikið endurnýjuð sumarið 2024. Íbúðin var máluð, skipt var um gólfefni, baðherbergi mikið endurnýjað, eldhús uppgert með endurnýjuðum eldhústækjum ásamt því að unnið var í hluta af rafmagni íbúðar. Unnið var í viðgerðum á múr og málningu utandyra ásamt málningarvinnu á svölum fjölbýlishússins. Skipt var út teppum á göngum sameignar ásamt því að unnin var málningarvinna innan sameignar. Sú viðgerð verður fullgreidd af seljendum.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri:
 Gengið er inn í anddyri með hvítum innbyggðum forstofuskáp. Nýlegt harðparket flæðir yfir öll rými íbúðar nema baðherbergi. 
Eldhús: Eldhúsið er með lakkaðri innréttingu, nýlegri hillu, borðplötu, nýlegri eldavél, uppþvottavél og nýlegum ísskáp. 
Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru rúmgóðar og bjartar í samliggjandi rými með harðparketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á svalir með skemmtilegu útsýni.
Baðherbergi: Baðherbergið er mikið endurnýjað. Það var málað, gólfið flotað og lakkað, sett var upp hvít innrétting, nýleg handlaug, skápar og klósett. Tengi er fyrir þvottavél.
Efri hæð:
Svefnherbergi:
 Frá stofu er stigi á rúmgóða efri hæð/ris sem núverandi eigendur hagnýta sem svefnherbergisloft. Hæðin með nýlegu parketi. Búin innbyggðum fataskáp. Stórir gluggar með opnanlegu fagi birta upp hæðina. Svefnherbergisloftið er talsvert undir súð og að sögn eiganda virkar rýmið stærra en opinberar skráningartölur segja til um.
Geymsla: Í kjallara sameignar er rúmgóð geymsla með mikilli lofthæð. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Í bílakjallara er svæði sem eigendur hafa hagnýtt sem sameiginlega bílaþvottaaðstöðu.

Hér er um að ræða fallega, vel skipulagða og mikið uppgerða eign á vinsælum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Skemmtileg staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir þá sem vilja vera nálægt bæjarlífi miðbæjarins. Nálægð við góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. Einnig er stutt er alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/04/202442.300.000 kr.45.800.000 kr.51.3 m2892.787 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5 (511)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (511)
102 Reykjavík
107.5 m2
Fjölbýlishús
312
1022 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 21 413
Bílskúr
Bílastæði
Hlíðarfótur 21 413
102 Reykjavík
176.9 m2
Fjölbýlishús
423
932 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (202)
Bílastæði
Hraungata 7 (202)
210 Garðabær
116.8 m2
Fjölbýlishús
312
1027 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (204)
Bílastæði
Hraungata 7 (204)
210 Garðabær
128.7 m2
Fjölbýlishús
413
1087 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin