Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja 70,8 fermetra íbúð á 2. hæð í góðu og eftirsóttu húsi með fjórum íbúðum í stigagangi á frábærum og rólegum stað við Brávallagötu í Vesturbæ Reykjavíkur.
Íbúðin er 57,0 fermetri að stærð og geymsla/herbergi í kjallara er 13,8 fermetrar að stærð. Sameiginleg falleg afgirt lóð er til suðurs og við enda hússins er stór leikvöllur fyrir börn.
Ný gólfefni eru á allri íbúðinni að undanskildu baðherbergi. Hurð fram í stigahús hefur verið endurnýjuð og uppfyllir nú gildandi kröfur fjöleignarhúsa um eldvarnarhurðir.
Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Í húsinu starfar mjög öflugt húsfélag, Húsfélag alþýðu sem heldur vel utanum allt almennt viðhald. Nýlega er búið að að endurnýja opnanleg fög í gluggum, gler og glerlista sem við á og fóðra/ endurnýja hluta frárenslislagna undir gólfi í kjallara stigagangs.
Lýsing eignar:
Inngangur, teppalagt stigahús.
Forstofa / hol, parketlagt og rúmgott með inngengum fataskáp.
Eldhús, dúklagt og bjart með eldri málaðri innréttingu og góðri borðaðstöðu.
Stofa, parketlögð og björt.
Barnaherbergi, parketlagt og rúmgott.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og hluti veggja, innrétting og sturtuklefi.
Hjónaherbergi, rúmgott, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg.
Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla/herbergi, með opnanlegum glugga, flotað og lakkað gólf og nýjum miðstöðvarofn og er það 13,8 fermetrar að stærð.
Sameiginlegt þvottaherbergi, rúmgott, lakkað gólf og sér tenglar fyrir hverja íbúð og er útgengið á baklóð.
Þurrkherbergi / hjólageymsla, rúmgott, lakkað gólf og hefur hver íbúð sitt svæði til geymslu.
Geymsla undir stiga er sameiginleg.
Húsið að utan lítur vel út og hefur alltaf hlotið gott viðhald. Samþykki liggur fyrir viðhaldi og framkvæmd samkvæmt húsfélagsyfirlýsingu og mun seljandi greiða fyrir það.
Lóðin er fullfrágengin og afgirt með hellulagðri stétt, grasflöt og trjábeðum og er í óskiptri sameign hússins.
Staðstetning eignarinnar er á vinsælum stað í vesturbænum þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, Melabúðina, Kaffi Vest og fleira.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarinsehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.