Fasteignasalan TORG og Gunnar Patrik Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, kynna: Glæsilega 3ja–4ra herbergja íbúð á 3. hæð í vönduðu lyftuhúsi með tvennum svölum, fataherbergi og sér baðherbergi inn af hjónaherbergi. Sérbílastæði í bílageymslu fylgir eigninni. Frábært sjávarútsýni við Strandveg í Garðabæ. Fjölbýlishúsið er teiknað af Birni Ólafssyni.Allar upplýsingar um eignina veitir Gunnar Patrik Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 822-9415 eða með tölvupósti á gunnar@fstorg.isEignin er með mjög rúmgóðu sameiginlegu anddyri með lyftu. Komið er inn í forstofu með fataskápum. Parket er á meginhluta íbúðarinnar en flísar á baðherbergjum og í þvottahúsi. Granítborðplötur eru í eldhúsi og á baðherbergjum. Allar innréttingar eru frá Brúnás og úr eik, fyrir utan í þvottahúsi þar sem er hvít innrétting með vaski.
Frá forstofu tekur við bjart og opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda samfellda heild. Eldhúsið er með fallegri eikarinnréttingu, granítborðplötu, stáltækjum, tengi fyrir uppþvottavél og stálháfi. Borðstofan er rúmgóð og nýtur mikils útsýnis. Stofan er björt og rúmgóð með útgengi út á svalir til vesturs og suðurs. Auðvelt er að útbúa þriðja svefnherbergið úr opnu vinnurými við stofuna ef þörf er á.
Svefnherbergin eru tvö. Barnaherbergið er rúmgott með eikarfataskáp. Hjónaherbergið er einstaklega rúmgott með útgengi út á svalir til suðurs. Inn af hjónaherberginu er fataherbergi ásamt sér baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum, upphengdu salerni, eikarinnréttingu með granítborðplötu, handklæðaofni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Aðalbaðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum, upphengdu salerni, eikarinnréttingu með granítborðplötu, handklæðaofni og sturtuklefa.
Hér er um að ræða afar fallega og vel skipulagða íbúð við Strandveg með einstöku sjávarútsýni út að Bessastöðum. Falleg ylströnd með hvítum sandi er í göngufæri og örstutt er út í náttúruna og á vinsælar gönguleiðir meðfram strandlengjunni. Leik- og grunnskóli eru í göngufæri og stutt er í alla helstu þjónustu.
Allar upplýsingar um eignina veitir Gunnar Patrik Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 822-9415 eða með tölvupósti á gunnar@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.