Fasteignaleitin
Skráð 17. apríl 2024
Deila eign
Deila

Hlíðarvegur 53

Tví/Þrí/FjórbýliNorðurland/Ólafsfjörður-625
136.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
34.900.000 kr.
Fermetraverð
255.490 kr./m2
Fasteignamat
20.200.000 kr.
Brunabótamat
53.450.000 kr.
AE
Arndís Erla Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1965
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2154080
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ágætt
Raflagnir
ágætt
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ágætt
Þak
ágætt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Lóð
50
Upphitun
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Að klára að klæða eignina að utan og skipta um rest af gluggum. Klára að drena bak við eignina. 
Gallar
Lekið hefur inn með skemmdum sem er verið að koma í veg fyrir með klæðningu. Lekið hefur inn með eign en verið er að drena til að koma í veg fyrir það.  
Fasteignamiðlun kynnir eignina Hlíðarvegur 53, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 215-4081 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hlíðarvegur 53 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4081, birt stærð 136.6 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.


Um er að ræða tvíbýli í hæðum Ólafsfjarðar með miklu útsýni og skjólgóðum palli. 

Nánari lýsing: 
Gengið er inn í rúmgott andyri með dökkgráum flísum og hiti á gólfi. Samliggjandi er þvottahús með góðu skápaplássi og lokuð geymsla með hillum.Fjótandi flísar eru á rýminu nema geymslu þar sem gólf er lakkað. Stofa og borðstofa eru mjög rúmgóð og björt með stóru gluggarými með frábæru útsýni. Eldhús er með hvítri innréttingu bæði neðri og efri skápar og ljósri borðplötu. Það er mjög rúmgott og með frábæru útsýni. Búið er að stúka af og gera herbergi úr hluta af stofu þar sem gengið var inn í eldhús einnig. Dökkt plast parket er á eigninni fyrir utan votrýmin þvottahús/geymslu, andyri og baðherbergi. 
Gengið er upp á efri pall eignarinnar á parketlögðum stiga. Á efri palli eru 3 svefnherbergi og baðherbergi en einnig er gengið út á pall úr einu svefnherbergjanna. Herbergin eru parketlögð en baðherbergið flísalagt. Fataskápar eru í herbergjunum. Baðherbergið er flísalagt með hvítum flísum á veggjum og dökkum flísum á gólfi.  
Búið er að klæða eignina að utan nýlega eða árið 2023. Búið er að skipta um hluta glugga en eftir að ganga frá því að einhverju leyti að innan. Timbur pallur með góðum skjólveggjum liggur í suður. Skipt var um glugga þar sem eignin var klædd fyrir utan tvö glugga. Ný hurð var sett þar sem gengið er út á pall. Pappi var settur á þakið árið 2014. Drenað var bak við hús árið 2023 og sett drenmöl. Skipt var um vatnslagnir árið 2010. Ný útidyrahurð var sett í árið 2024. Stór garður er við eignina og er hann graslagður. Mikið útsýni er í allar áttir. 

Andyri: flísalagt með gráum flísum og gólfhita. 
Þvottahús: flísalagt með gráum flísum og gólfhita. Ljósum skápum, efri og neðri og háum skáp. Dökkgrá borðplata með góðu borðplássi. 
Stofa/borðstofa: Parketlögð með dökku plastparketi og frábæru útsýni. 
Eldhús: Hvít innrétting með ljósri borðplötu. Dökkt plastparket. Fallegt útsýni yfir fjörðinn. 
Svefnherbergi: eru fjögur öll parketlögð. Sum herbergjanna eru með fataskápum. Eitt herbergjanna er með útgang út á timburpall. 
Baðherbergi: er flísalagt með hvítum flísum á veggjum og ljósum flísum á gólfi. Walk in sturtuklefa, klósetti, vask og ljósri innréttingu. 
Geymsla: með góðum hillum og lökkuðu gólfi. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/09/20118.210.000 kr.8.400.000 kr.136.6 m261.493 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Aðalgata 22
Skoða eignina Aðalgata 22
Aðalgata 22
625 Ólafsfjörður
172.4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
524
203 þ.kr./m2
35.000.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 3
Skoða eignina Hlíðarvegur 3
Hlíðarvegur 3
580 Siglufjörður
101.9 m2
Fjölbýlishús
312
343 þ.kr./m2
34.990.000 kr.
Skoða eignina Fossvegur 16
Skoða eignina Fossvegur 16
Fossvegur 16
580 Siglufjörður
122.4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
293 þ.kr./m2
35.900.000 kr.
Skoða eignina Hólavegur 38
Skoða eignina Hólavegur 38
Hólavegur 38
580 Siglufjörður
124 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
523
281 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache