Fasteignaleitin
Skráð 22. ágúst 2025

Valshlíð 1

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
58 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
1.118.966 kr./m2
Fasteignamat
29.500.000 kr.
Mynd af Aron Már Smárason
Aron Már Smárason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2532558
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 1 - Íbúð 01-03. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin í lok ágúst 2025.

Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 5832000 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina. Hafðu samband og bókaðu skoðun hjá okkur.

Á Sölusíða eignarinnar færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Opin og björt 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í vesturenda Hlíðarhorns. Birt stærð er 58,0 fm þar af 4,0 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1.

Nánari lýsing: Í anddyri er fataskápur. Íbúðin opnast beint inn í vel skipulagt alrými, eldhús og stofu, með útgengi á svalir í vestur. Hvít eldhúsinnrétting, hvítur quartz-steinn á borðum og krómuð blöndunartæki. Rúmgótt hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur. Krómuð blöndunartæki. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0020. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem ibúar munu hafa forgang.

ATH. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Önnur gjöld sem kaupandi mun þurfa að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Freyjugata 32
Opið hús:17. mars kl 17:00-17:45
DJI_0078.JPG
Skoða eignina Freyjugata 32
Freyjugata 32
101 Reykjavík
89.1 m2
Fjölbýlishús
413
1178 þ.kr./m2
105.000.000 kr.
Skoða eignina Skildinganes 45
Gott husfrontur 3.jpg
Skoða eignina Skildinganes 45
Skildinganes 45
102 Reykjavík
250 m2
Einbýlishús
73
Fasteignamat 169.650.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Þorrasalir 17
Bílastæði
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Þorrasalir 17
Þorrasalir 17
201 Kópavogur
116.3 m2
Fjölbýlishús
413
850 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 10 - íbúð 201
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 12:00-12:30
Tryggvagata 10 - íbúð 201
800 Selfoss
118.6 m2
Fjölbýlishús
423
842 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin