Opið hús:03. feb. kl 16:00-16:30
Skráð 30. jan. 2026

Lautasmári 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
86 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
789.535 kr./m2
Fasteignamat
67.450.000 kr.
Brunabótamat
48.250.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1996
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2225462
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
í góðu ástandi
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
4,15
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala, Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse og Bárður H Tryggvason kynna fallega og bjarta þriggja herbergja endaíbúð (með glugga á 3 vegu) þriðju hæð við Lautasmára 14, 201 Kópavogur.
Smárahverfið er eitt best staðsetta íbúðahverfið á Stór-Reykjavíkursvæðinu og mjög eftirsótt þar sem stutt er í skóla, verslanir og alla þjónustu.
Fasteignamat íbúðarinnar er kr. 67.450.000.
Íbúðin er í þriggja hæða fjölbýlishúsi á frábærum stað í Smárahverfinu í Kópavogi.
Örstutt er í Smáraskóla, leikskóla, glæsilega íþróttaaðstöðu Breiðabliks. Smáralindina og fleira.
Góðar suðursvalir. 
Frábært skipulag með stórri stofu og 2 rúmgóðum svefnherbergjum.
Íbúðin er skráð 86 fm og þar af er geymslan 5 fm.

NÁNARI LÝSING:
Íbúðin skiptist í rúmgóða stofu með útgengi útá suðursvalir.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum.
Eldhús með ágætri innréttingu, nýleg borðplata og tæki.
Flísalagt baðherbergi með baðkari, innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Á gólfum er hvíttað eikarparket. Nýr dyrasími 2024. Nýjar innihurðir 2024.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi sem og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Sameignin innanhúss er mjög snyrtileg og flott.

Hússjóðurinn er kr. 22.229 á mánuði.
Stigagangur var málaður 2025, veggir, gluggar og hurð í anddyri. Nýtt teppi á stigagang 2020. Tröppur að utan múraðar og lagaðar 2025.
Sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir 4 bíla í enda götunnar.
Niðurlag: Falleg og vel skipulögð íbúð á eftirsóttum stað.

Nánari upplýsingar veita: Bárður H Tryggvason í s-8965221 eða á bardur@gimli.is eða Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/12/202140.900.000 kr.54.750.000 kr.86 m2636.627 kr.
28/11/200615.875.000 kr.21.000.000 kr.81 m2259.259 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Núpalind 6
Opið hús:04. feb. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Núpalind 6
Núpalind 6
201 Kópavogur
81.8 m2
Fjölbýlishús
211
793 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Lautasmári 1
Skoða eignina Lautasmári 1
Lautasmári 1
201 Kópavogur
95 m2
Fjölbýlishús
312
736 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 10
Opið hús:01. feb. kl 17:00-17:20
Skoða eignina Sunnusmári 10
Sunnusmári 10
201 Kópavogur
68.7 m2
Fjölbýlishús
211
1017 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjasmári 102
Skoða eignina Lækjasmári 102
Lækjasmári 102
201 Kópavogur
76.5 m2
Fjölbýlishús
211
888 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin