** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Eignin getur verið laus við kaupsamning - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög björt og rúmgóð 117,3 m2, 3ja herbergja endaíbúð með glæsilegu útsýni á 3. hæð í lyftuhúsi fyrir 50 ÁRA OG ELDRI við Klapparhlíð 1 í Mosfellsbæ. Íbúðinni fylgir merkt bílastæði í lokaðri bílageymslu í kjallara. Eignin er skráð 117,3 m2, þar af íbúð 110,6 m2 og geymsla 6,7 m2. Bílastæði í bílageymslu merkt B04 fylgir eigninni og er búið að setja upp ON hleðslustöðvakerfi. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla í sameign í kjallara. Svalir í suðurátt með svalalokun og glæsilegu útsýni. Frábær staðsetning rétt við Lágafellslaug, World Class, golfvöll og fjölda útisvistarmöguleika. Eignin er laus við kaupsamning.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í rúmgóðu og björtu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsi er innrétting með blástursofni, helluborði og háf. Gert ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Úr stofu er gengið út á
svalir í suðurátt með svalalokun.
Svefnherbergi nr 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með vegghengdu salerni, innréttingu, handklæðaofni, sturtu og baðkari. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, skráð 6,7 m2.
Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir eigninni. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi frá ON.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla er í sér byggingu fyrir framan húsið, þar er einnig dekkjageymsla og sorpskýli. Rafrænir hurðaopnarar í sameign. Sameignileg hleðslustöð á bílaplani.
Verð kr. 99.500.000,-