ÁSAKÓR 15, 203 KÓPAVOGI.
Falleg, björt og mikið endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi, ásamt stæði í bílageymslu.
Birt stærð er 140,4 fm., þar sem íbúðarhluti er 130,7 fm. og sérgeymsla í kjallara 9,7 fm.
Húsið var byggt 2007. Eignin er merkt 02 0201 og stæði í bílageymslu 03 B14.
Eignin samanstendur af eldhúsi, stofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu og stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing eignar.
Harðparket með eikaráferð var lagt á öll rými, utan votrýma, árið 2021.
Rúmgóð forstofa með fataskáp með rennihurðum.
Stórt forstofuherbergi með fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp með rennihurðum.
Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp með rennihurðum. Horngluggi gefur rýminu fallegt yfirbragð og glæsilegt útsýni.
Stofa með útgengi á rúmgóðar og einstaklega skjólgóðar suðursvalir með fallegu útsýni.
Eldhús með eyju er opið við stofu/borðstofu. Falleg hvít innrétting, tvöfaldur ísskápur, innbyggð uppþvottavél, ofn og helluborð.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með ljúflokunum á skúffum og skápum, stór spegill með lýsingu í, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn og upphengt salerni.
Flísalagt rúmgott þvottahús er innan íbúðar. Hvít innrétting, skolvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
9,7 fm. sérgeymsla í sameign með hillum. Sameiginleg hjóla-, og vagnageymsla.
Sérstæði í lokaðri bílageymslu, merkt 03 B14.
Helstu endurbætur í íbúð skv. eiganda:
2021:
Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð.
Baðinnrétting og salerni endurnýjað.
Harðparket með eikaráferð lagt á öll rými utan votrými.
Helstu endurbætur á ytra byrði húss.
2024 framkvæmdi Verksýn ástandsskoðun á ytra byrði hússins og í framhaldinu ástandsskýrslu. Farið var í framkvæmdir skv. ástandsskýrslu 2025.
2026 kom lokaskýrsla frá Verksýn þar sem farið var yfir framkvæmdir og hvernig til tókst.
2026 göngu- og hjólastígur settur sunnan megin við hús og tengdur beint við stíg Kópavogsbæjar.
2026 var sett rafdrifin hurð í anddyri sameignar og einnig við inngang bílastæðahúss.
Snyrtileg sameign. Hús og framkvæmdasjóður standa vel.
Mjög vel skipulögð, björt og falleg eign þar sem er stutt í Hörðuvallaskóla og leikskólana Kór, Baug og Austurkór.
Öll þjónusta í hverfinu t.a.m Krónan, Spar, Nettó, íþróttaaðstaða í Kórnum, Salalaug og stutt í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk.
Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@hfs.is
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@hfs.is