LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu einstaklega bjart, rúmgott og vel skipulagt raðhús á pöllum við Tungubakka 32 í Reykjavík. Eignin stendur í rólegum botnlanga og einkennist af skemmtilegu pallaskipulagi, aukinni lofthæð, stórum gluggum og einstaklega björtu og rúmgóðu stofurými. Tvennar svalir eru á efri hæð, til austurs og vesturs, auk afgirts og skjólgóðs garðs með góðri verönd.
Skemmtileg fjölskyldueign með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, góðum geymslurýmum og bílskúr. Stofur, borðstofa, eldhús og eitt svefnherbergi og baðherbergi eru á efri hæð þar sem aukin lofthæð og stórir gluggar setja sterkan svip á eignina. Á neðri hæð eru rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og útgengi á baklóð.
Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu, útivistarsvæði og góðar samgöngur.
Birt stærð eignarinnar er 204,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 20 fm. Að auki eru í eigninni nýtanleg rými sem ekki eru innan skráðra fermetra, þvottahús og gott geymslurými undir bílskúr.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is.
Nánari lýsing - miðpallur
Forstofa - opið forrými með flísum á gólfi.
Geymsla er innaf forstofu, flísar á gólfi.
Nánari lýsing - efsti pallur
Eldhús með Alno-innréttingu, bakaraofni í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í einstaklega björtu og rúmgóðu alrými með aukinni lofthæð og stórum gluggum sem veita mikla og fallega birtu. Parket á gólfi og útgengt á rúmgóðar vestursvalir.
Setustofa/sjónvarpshol er tveimur þrepum ofar en stofurýmið og myndar skemmtilegt fjölskyldurými. Parket á gólfi og útgengt á austursvalir.
Svefnherbergi I með fataskáp, parketi á gólfi og útgengi á vestursvalir.
Baðherbergi flísalagt með innréttingu og upphengdu salerni.
Nánari lýsing - neðsti pallur
Hjónaherbergi rúmgott með fataherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi II með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III / sjónvarpsherbergi er í dag nýtt sem sjónvarps- og fjölskyldurými með útgengi á baklóð. Rýmið var áður tvö svefnherbergi.
Baðherbergi flísalagt að mestu með innréttingu, baðkari, sturtu og salerni. Ný baðinnrétting var sett upp árið 2026.
Þvottahús með innréttingu og máluðu gólfi. Þvottahúsið er ekki innan skráðra fermetra eignarinnar.
Geymsla undir bílskúr er rúmgóð, útgrafið geymslurými með takmarkaðri lofthæð. Rýmið er ekki innan skráðra fermetra eignarinnar.
Bílskúr er 20 fm samkvæmt skráningu, með máluðu gólfi.
Garðurinn er afgirtur, skjólgóður og fjölskylduvænn með góðri verönd og útgengi frá neðri hæð. Tvennar svalir eru á efri hæð hússins, rúmgóðar vestursvalir meðfram hæðinni og austursvalir út frá setustofu/sjónvarpsholi.
Eignin hefur fengið
gott og reglulegt viðhald en þá var þak, þakpappi og þakrennur voru endurnýjuð um 2020. Skipt hefur verið um gler og/eða glugga á nokkrum stöðum, m.a. á austurhlið efri hæðar og vesturhlið efri hæðar, auk glers í húsinu síðar. Eldhús var endurnýjað 2008 og ný innrétting var sett upp á baðherbergi neðri hæðar árið 2026. Fagaðili hefur jafnframt reglulega yfirfarið ofnakerfi og skipt um nokkra ofna eftir þörfum.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.