Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri að Árskógum 6, 109 Reykjavík.Húsið hefur fengið gott viðhaldið í gegnum árin
* Yfirbyggðar svalir
* Húsvörður á staðnum
* Ýmis félagsstarfsemi
* Sameiginlegur matsalur á jarðhæðinniNánari upplýsingar veita:Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eign samkv. HMS er 93,60 m2
Eignin skiptist í hol, eldhús, borðstofu / stofu, svalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.Hol er með parket á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með u-laga innréttingu, bakarofn í vinnuæð, helluborð, vifta og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Borðstofa /
stofa er með parket á gólfi og útgengt út á yfirbyggðar
svalir.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Baðherbergi er dúklagt með innréttingu með handlaug og skápum, upphengdu wc, walk-in sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla í sameign er skráð 4,2 m2 samkv. HMS.
Um er að ræða bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð í eftirsóttu og vel viðhöldu húsi sem er ætlað fyrir 60 ára og eldri sem eru félagsmenn í Félagi eldri borgara.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og er húsvörður starfandi í húsinu. Að auki er í boði mikil þjónusta í húsinu og má meðal annars nefna sameiginlegan matsal á jarðhæðinni sem býður upp á heitan mat í hádeginu. Ýmis félagsstarfsemi fer einnig fram á jarðhæðinni auk þess sem hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa eru starfræktar þar.
Góð aðkoma er á lóðina sem er fullfrágengin og með nægum bílastæðum. Stutt í helstu þjónustu, s.s. verslanir, heilsugæslu ofl.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.