Rúmgóð og björt 3ja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu hæð) í 6 íbúða fjölbýlishúsi auk bílskúrs við Akraland 1 í Fossvogi. Sér þvottahús er innan íbúðar. Bílskúr í mjög góðu ástandi með glugga og millilofti. Sú kvöð er á eigninni að hana má aðeins selja þeim sem eru orðnir 50 ára eða eldri. Eignin er laus við kaupsamning.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 119,8 fm. og þar af er bílskúr 30 fm. Geymsla íbúðar er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Skipting eignar: Anddyri, tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, þvottahús, svalir, geymsla og bílskúr.
Nánari lýsing: Gengið er inn í íbúðina af svölum. Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi. Svefnherbergi inn af anddyri með góðu skápaplássi og ná skápar upp í loft og parket á gólfi. Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á góðar svalir úr stofunni. Eldhús rúmgott með upprunalegri og mjög snyrtilegri innréttingu, nýr ofn, nýtt helluborð, nýr gufugleypir, ný uppþvottavél, eldhúskrókur og flísar á gólfi. Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. Baðherbergi rúmgott með sturtuklefa, snyrtilegri innréttingu og flísalagt í hólf og gólf. Þvottahús er innan íbúðar með glugga, hillur og flísar á gólfi. Geymsla íbúðar ca. 5 fm.er í kjallara hússins og er ekki skráð inn í fermetratölu íbúðarinnar. Bílskúr eignarinnar er í bílskúrslengju, skráður 30 fm. auk millilofts og bílskúrshurðaopnara. Einnig er hurð á bílskúrhurð, gluggar og opnanlegt fag, snyrtileg innrétting og gólf nýlega lakkað.
Skipt var um þak og þakkant 2020 Gluggar voru málaðir að utan 2025
Sameiginlegur inngangur er í húsið og er sameignin öll mjög snyrtileg, stigagangur var málaður og skipt um dúk 2020. Fallegur og vel til hafður garður. Göngustígar steyptir og bílastæði malbikuð.
Staðsetning eignar er mjög góð og er stutt í alla almenna þjónustu. Falleg og snyrtileg eign á mjög eftirsóttu svæði. Eignin er mikið til upprunaleg en lýtur vel út og er mjög vel með farin.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteigansali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
14/09/2017
37.800.000 kr.
22.500.000 kr.
119.8 m2
187.813 kr.
Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.