Fasteignaleitin
Skráð 20. apríl 2026

Suðurgata 92

HæðVesturland/Akranes-300
102.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
795.918 kr./m2
Fasteignamat
70.600.000 kr.
Brunabótamat
62.850.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
2523988
Landnúmer
230510
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stórar svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
*** Suðurgata 92 - 300 Akranes ***

PRIMA fasteignasala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: Glæsileg vönduð 3ja herb. 102,9 fm útsýnisíbúð á 2. hæð í tvíbýli á frábærum stað á Akranesi. Vel skipulögð með svölum og sameiginlegum bakgarði. Svalir 14,4fm, þaksvalir 30,1fm. Bílastæði upphitað.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús með eyju í alrými með stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, 1 baðherbergi og þvottaherbergi. Gott pláss er á milli eigna á friðsælum stað. Eignin hefur gólfhita, er parketlögð og flísalögð í votrými.

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Anddyri: með flísar og hvítum fataskápum.
Svefnherbergi: Eru rúmgóð 2 talsins með hvítum fataskápum.
Stofa: Með stórum gluggum og frábæru útsýni til Reykjavíkur. Útgengt á svalir.
Eldhús: Innrétting í eldhúsi er með dökkri viðaráferð og grábrúnum efriskápum og eldhústækjum (Ofn, helluborð, uppþvottavél og eyjuháfur er frá Heimilistækjum.) Ísskápur fylgir ekki með.
Baðherbergi: Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og útloftun.
Svalir: eru forsteyptar og á svalagangi eru sandblásið glerhandrið frá Kambar byggingavörum ehf.. Glæsilegt útsýni með miklu plássi. Sólin nýtist allann daginn.
Inntaksrými: Er undir stiga og í sameign. 
Bílastæði: eru upphituð og hellulögð.
Rafbílahleðsla

Sökklar eru forsteyptir. Gólfplata er staðsteypt. Útveggir eru byggðir úr forsteyptum einingum brotið upp með standandi timburklæðningu út lerki.
Gluggar og hurðir eru ál/tré frá Kambur byggingarvörur ehf. Innihurðir eru í matt hvítu frá Byko. Venetian Marble Rainbow flísar frá Álfaborg á gólfum í baðherbergi, þvottahúsi og andyrri. Ljóst parket á gólfum í öðrum rýmum frá Húsasmiðjunni.

- Innréttingar frá HTH
- Parket frá Húsasmiðjunni
- Flísar frá Álfaborg
- Hurðir frá Byko
- AEG Eldhústæki
- Blöndunartæki eru Grohe frá Byko.

Frábær staðsetning miðsvæðis Akranes þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Suðurgata er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.


Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 / oliver@primafasteignir.is


__________________________________________________________________________________________


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/12/202350.300.000 kr.64.500.000 kr.102.9 m2626.822 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tröllakór 8
Bílastæði
Skoða eignina Tröllakór 8
Tröllakór 8
203 Kópavogur
101.1 m2
Fjölbýlishús
312
780 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Móstekkur 4b 102
IMG_1392 Large.jpeg
Móstekkur 4b 102
800 Selfoss
132.5 m2
Fjölbýlishús
413
588 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Jötundalur 6A - 01-01
Opið hús:23. apríl kl 15:00-15:30
Jötundalur 6A - 01-01
260 Reykjanesbær
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
748 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 6G - 0201
Dísardalur 6G - 0201
260 Reykjanesbær
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
748 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin