Fasteignaleitin
Skráð 10. des. 2025

Háteigur 38

RaðhúsSuðurnes/Garður-250
106.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.140.000 kr.
Fermetraverð
600.000 kr./m2
Fasteignamat
31.100.000 kr.
Mynd af M. Sævar Pétursson M.sc
M. Sævar Pétursson M.sc
Lögg. fasteignasali
Sérinng.
Fasteignanúmer
2539096_6
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
02
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir háteig 38, 250 Garði.
Um er að ræða nýtt 3 herbergja 106,9 fm. raðhús.
Íbúðin skilast fullgerð, með sólpalli til suð-vesturs, stétt fyrir framan með snjóbræðslu.
Staðsetningin er góð, rólegt hverfi, í göngufæri við grunnskóla, sundmiðstöð, líkamsrækt og íþróttahús.

 
Frágangur innanhúss:
Eldhús frá HTH innréttingum með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakaraofni í vinnuhæð og helluborði. Heimilistæki frá AEG.
Baðherbergi með HTH innréttingu, upphengdu salerni og sturtu með glerskilrúmi. Gólf og veggir flísalagðir. Blöndunartæki Grohe.
Þvottaaðstaða er inná baðherbergi með HTH innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Innréttingar og fataskápar er allt frá HTH og í sama lit.
Svefnherbergin eru tvö talsins og hafa fataskápa, frá HTH.
Gólfefni eignarinnar eru vönduð; baðherbergi, þvottahús og forstofa eru flísalögð, en önnur rými eignarinnar eru með harðparketi frá Birgisson. Innihurðar eru frá Birgisson.
Í loftum er innfelld LED lýsing. Eignin er með tengjum fyrir tölvu og síma ásamt hitastilli í hverju rými fyrir gólfhitakerfi frá Rehau.
 
Byggingarlýsing:
Útveggir eru hefðbundnir timburveggir með timburklæðningu.
Þak er byggt upp með kraftsperrum. Ofan á borðaklæðningu kemur vatnsvarinn þaköndunardúkur, síðan er þakið klætt með aluzink þakklæðningu.
Gluggar og hurðir eru úr timbri með álkápu, hvítir að lit. Opnanleg fög eru topphengd með þjófavörn. Björgunarop eru í gluggum í svefnherbergjum.
Öll inntök og deilikistur eru í anddyri. Húsið verður hitað upp með gólfhita sem lagður er í einangrun ofan á steypta botnplötu, handklæðaofn er á baðherbergi.
Niðurföll eru í þvottahúsi og inn á salernum. Útsog er í eldhúsum og frá baðherbergjum/ þvottahúsum upp í gegnum þak.
Innveggir innan íbúða eru léttir gifsveggir Hljóðeinangrun á vegg milli íbúðareininga er 55dB og brunakrafa REI90.
Gólf í baðherbergi eru vatnsheld með niðurfall í sturtu. Gólf verða afhent án kants við sturtu þannig niðurfallið þar er öryggisniðurfall.
Veggir við sturtu er kvoðaðir þannig að þeir þoli gufu og raka.
Við hverja íbúð eru tvö bílastæði sem eru steypt eða hellulögð. Stétt framan við hús og við inngang er upphituð. Lóð er með grasi, tré- og runnagróðri. Timburpallar fyrir aftan. Sorpgeymslur eru í innan lóðar og er gert ráð fyrir þremur ílátum 3x240 lítrar á hverja íbúð.
 
Ljósmyndir eru úr sambærilegri eign.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000.
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásvallagata 55
3D Sýn
Opið hús:16. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Ásvallagata 55
Ásvallagata 55
101 Reykjavík
56.2 m2
Fjölbýlishús
211
995 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 3
Bílskúr
Skoða eignina Selvogsbraut 3
Selvogsbraut 3
815 Þorlákshöfn
131.6 m2
Raðhús
312
622 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 20, íbúð 0302
Sambyggð 20, íbúð 0302
815 Þorlákshöfn
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
746 þ.kr./m2
55.500.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 20, íbúð 0103
Sambyggð 20, íbúð 0103
815 Þorlákshöfn
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
746 þ.kr./m2
55.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin