Opið hús:25. feb. kl 17:30-18:00
Skráð 19. feb. 2026

Kríuás 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
97.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
719.136 kr./m2
Fasteignamat
69.250.000 kr.
Brunabótamat
54.700.000 kr.
Mynd af Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Byggt 2002
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2248962
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Að sögn seljanda í lagi
Raflagnir
Að sögn seljanda í lagi
Frárennslislagnir
Að sögn seljanda í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Að sögn seljanda í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Útsýnissvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Rúmgóð og björt 3ja herberbergja útsýnisíbúð með sér inngangi á 3. hæð (efstu) með rúmgóðum svölum til vesturs/norðvesturs í fallegu fjölbýlishúsi við Kríuás 19 í Hafnarfirði. Mögulegt er að færa eldhúsið og gera aukaherbergi í eigninni. Einstaklega glæsilegt útsýni er úr eigninni. Sér þvottaherbergi innan íbúðar. Nýjar innihurðir og útidyrahurð.  Nýtt parket er á íbúðinni. Sérgeymsla er staðsett á jarðhæð ásamt vagnageymslu og hjólageymslu. Eignin er laus við kaupsamning. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Áslandsskóla ásamt tveimur leikskólum

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 97,2 fm. og þar af er geymsla 2,9 fm. 

Nánari lýsing:

Forstofa rúmgóð með innbyggðum skáp og flísum á gólfi. 
Gangur með parket á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Mikið útsýni er úr stofunni. Útgengt er út á svalir úr stofunni. 
Eldhús er opið að hluta við stofu með flísum á gólfi. Snyrtileg eldhúsinnrétting, helluborð, með tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, flísar á milli skápa og eldhúskrókur með fallegum eldhúsglugga.  Mögulegt er að færa eldhúsið og gera auka herbergi. 
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Svefnherbergi með skáp pg parket á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, flísar á gólfi og veggjum. 
Þvottaherbergi mjög rúmgott, vaskur og auðvelt að nýta hluta þess sem geymslu. Flísar á gólfi. 

Geymsla íbúðar er staðsett á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg og er staðsett á jarðhæð. 

Glæsilegt útsýni er úr eigninni út Reykjanesið, Keili, Akranesi, Snæfellsjökli, Esjunni, út á sundin og víðar og er húsið er staðsett á jaðarlóð. 
Lóðin er afar snyrtileg með tyrfðum flötum á baklóð og malbikuðum stæðum fyrir framan hús. Í sumar hafa staðið yfir viðhaldsframkvæmdir við húsið sem nú eru á lokametrunum. Ráðgjafi var fenginn til að meta ástand hússins og farið var í þær framkvæmdir sem hann mælti með. Unnið hefur verið að smávægilegum múrviðgerðum, skipt um þá glugga sem voru komnir á tíma, og húsið hefur verið sílanborið og málað. Framkvæmdirnar eru nú við það að ljúka og seljandi greiðir kostnaðinn við þær að fullu.

Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Áslandsskóla ásamt tveimur leikskólum (Tjarnarás og Stekkjarás). Stutt í útivistarparadís, sem liggur við bakgarðinn, með glæsilegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. að Hvaleyrarvatni, Ástjörn og víðar.


Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/07/202565.300.000 kr.118.000.000 kr.97.2 m21.213.991 kr.Nei
27/05/202143.250.000 kr.47.000.000 kr.97.2 m2483.539 kr.
16/06/201423.050.000 kr.27.500.000 kr.97.2 m2282.921 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 402
Suðurhella 16 íb. 402
221 Hafnarfjörður
87.1 m2
Fjölbýlishús
312
780 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, Íb. 501
Bílastæði
Opið hús:21. feb. kl 12:00-12:30
Hringhamar 37, Íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
870 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 2
Bílastæði
Opið hús:22. feb. kl 13:45-14:15
Skoða eignina Áshamar 2
Áshamar 2
221 Hafnarfjörður
83.2 m2
Fjölbýlishús
32
867 þ.kr./m2
72.100.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (203)
stebbi_vefur (4).png
Áshamar 56 (203)
221 Hafnarfjörður
93.1 m2
Fjölbýlishús
413
779 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin