Ás fasteignasala kynnir til sölu glæsilegt einbýlishús á einstökum stað í Hafnarfirði. Um er að ræða 287 fermetra einbýlishús með innbyggðu bílskýli á 784,1 m² glæsilegri útsýnislóð á skjólsælum og eftirsóttum stað í Áslandinu. Húsið er teiknað af GlámuKím og Sigríði Sigurðardóttur og er byggt árið 2003 en viðbyggingin er byggð árið 2018.
Lóðin er fullfrágengin og viðhaldslétt að hluta til óhreyfð náttúra. Stór og glæsileg innkeyrsla fyrir 3-4 bíla og stéttar fyrir framan húsið eru með hitalögnum. Skjólsælar verandir fyrir frama og aftan húsið. Stutt er í skóla, tvo leikskóla og íþróttasvæði Hauka.
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega
Utanhús:Húsið er steinað að utan að hluta og með lerki klæðningu. Gluggar og hurðir eru frá Ideal Combi. Á þaki er bárujárn og þakpappi á viðbyggingu.
Skipulag eignar: Neðri hæðKomið er inn í stóra forstofu / hol. Innaf holi er skrifstofa og stofa. Tveir stigar eru úr holi/inngangi, annar gengur upp í svefnálmu og hinn upp í eldhús og borðstofu. Einnig er gengið úr holi inn í geymslu og fjölnotaherbergi/ þvottahús / bílskúr.
Inngangur: Slípuð steypa – Fatahengi með skúffum frá Brompton/Boffi.
Stofa – Skrifstofa: Niðurlímt ólíuborið eikarparket – innfelld lýsing, brautir og arinn.
Snyrting: Vola blöndunartæki.
Geymsla: Náttúrusteinn.
Fjölnotaherbergi/Þvottaherbergi: Góðir skápar og þvottahúsinnrétting - Stór hurð frá Schuco. Náttúrusteinn á gólfi.
Efri hæð:Borðstofa og eldhúsInnrétting: Stór eyja með háfi ásamt innréttingu og hillum frá Boffi. Innbyggð kaffivél, hitaskúffa, uppþvottavél og tveir ísskápar. Tæki frá Guggeno og Mile. Stór setgluggi með fallegu útsýni ásamt rennihurð frá Schuco. Olíuborin eik, lýsing frá FLOS/Lumex.
Gólfefni: Slípuð steypa.
Skjólgóðar suður svalir gengið út úr eldhúsi.
Sjónvarpsherbergi: Innaf eldhúsi er sjónvarpsherbergi, gólfefni er ólíuborin eik, lýisng frá FLOS/Lumex
Svefnálma skiptist í 4 svefnherbergi og 2 baðherbergi.
Hjónaherbergi: Brompton hengi/skúffur frá Boffi – niðurlímt eikarparket á gólfum.
Herbergi 1, 2 og 3Fataskápar í 2 herbergjum - niðurlímt eikarparket á gólfum - innfeld lýsing.
Baðherbergi 1Vola blöndunartæki, 60x60 flísar á gólfi og marmari inn í sturtu.
Innrétting með marmaravaski og borðplötu. Innrétting og spegill frá Boffi.
Baðherbergi 2Vola blöndunartæki, 60x60 flísar á gólfi og marmari inn í sturtu.
Innrétting með marmaravaski og borðplötu. Innrétting og spegill frá Boffi.
Allar innihurðir eru hvítar.
Húsið er hitað upp með gólfhita.
Skv. seljanda er húsið í góðu ástandi að utanverðu.Lóðin, sem er 784,1 fermetra lóð, er fullfrágengin og viðhaldslétt, að hluta til óhreyfð náttúra. Stór innkeyrsla með hellum og hitalögnum undir, steyptum veggjum, möl í beðum o.fl. Góð útigeymsla er við bílskýli og önnur norðanmegin ca. 4 fm og einnig er góð sorpgeymsla sem er fyrir 3-4 tunnur.
Hér er hlekkir á umfjöllun um húsið:GlámaKímViðbygging / addition | Gláma·Kím Nanne Springer - ljósmyndariNanne Springer - Iceland | Hafnarfjörður Innréttingar:Boffi Official Website - Made in Italy Furniture BrandBókið skoðun og fáið nánari upplýsingar hjá sölumönnum Ás fasteignasölu: Stefán Rafn Sigurmannsson löggiltur fasteignasali s.
655-7000 / stefan@as.is
Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali s.
777-0939 / arnor@as.is
Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali s.
772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is