Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilegt og mjög mikið endurnýjað 277,0 fermetra einbýlishús með aukaíbúð á jarðhæð, teiknuðu af Guðmundi Kr. Kristinssyni, arkitekt, á eftirsóttum stað við Hlyngerði í Reykjavík. Eignin stendur á rólegum stað á skjólsælli og gróinni 784,0 fermetra lóð.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð hið ytra á sl árum
- Þak algjörlega endurnýjað, nema á bílskúr þar sem ekki var skipt um sperrur, öll þakborðborð endurnýjuð, þakpappi, þak-ál og niðurföll.
- Allt gler á neðri hæð endurnýjað og hluti glers og gluggalista á efri hæð
- Bílskúrshurð og útihurðir endurnýjaðar
- Efri hæð hússins öll endurnýjuð hið innra eftir teikningum Gunnars Páls Kristinssonar, arkitekts, hjá Rýma-arkitektum
- gólfhitalagnir, gólfefni, innihurðir, innréttingar, baðherbergi, gólfhitalagnir, raflagnir og tafla, neysluvatnskerfi á forhitara, o.fl. hefur verið endurnýjað
- Verulega aukin lofthæð er á efri hæð hússins og stórir og miklir gluggar
- Neðri hæð hússin endurnýjuð að mestu, þ.m.t. gólfefni, eldhúsinnrétting, baðherbergi, raflagnir að mestu, rafmagnstafla o.fl.
Lýsing eignarinnar:
Efri hæð hússins, sem er 170,7 fermetrar að stærð, skiptist þannig:
Forstofa, náttúruflísar á gólfi, innbyggðir fataskápar og fatahengi.
Gestasnyrting, náttúruflísar á gólfi og hluta veggja, vegghengt wc.
Hol, parketlagt.
Sjónvarpsstofa, bæði með rennihurð við hol og svefngang, parketlögð og rúmgóð.
Samliggjandi stofur, parketlagðar, bjartar og rúmgóðar, gert ráð fyrir arni og útgengi á svalir til suðurs og vesturs.
Eldhús, opið við stofur, parketlagt og með fallegum gráum innréttingum og eyju með graníti á borðum. Borðaðstaða, innbyggð uppþvottavél og gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp með klakavél.
Gangur, parketlagður og með innbyggðum fataskápum upp í loft.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi, náttúruflísar á gólfum og hluta veggja, innréttting, handklæðaofn, vegghengt wc og flísalögð stór sturta með sturtugleri.
Barnaherbergi II, parketlagt.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með miklum fataskápum og útgengi á svalir.
Þvottaherbergi, keramikflísar á gólfi, innrétting með vaski og vinnuborði og útgengi á lóð.
Bílskúr, með gluggum, keramikflísar á gólfi, ný bílskúrshurð með nýjum mótor og rennandi heitt og kalt vatn.
Í upphafi var opið á milli hæða hússins og það nýtt sem einbýlishús, en árið 2018 var stigi á milli hæða fjarlægður og stigaopi lokað.
Vel er mögulegt að setja góðan stiga á milli hæða, sem myndi þá liggja úr holi efri hæðar niður í rými á neðri hæð sem eru forstofa / hol og breyta húsinu þannig aftur í eina íbúð.
Neðri hæð hússins, sem er 106,3 fermetrar að stærð, er mikið endurnýjuð og skiptist þannig:
Forstofa / hol, parketlagt og rúmgott með miklum fataskápum og fatahengi.
Herbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi, nýlega endurnýjað. Flísalagt gólf og veggir, innrétting, vegghengt wc., handklæðaofn, loftræsting og flísalögð sturta með sturtugleri.
Gangur, parketlagður.
Hol, við gang er mjög stórt og parketlagt og á teikningum er holið sýnt sem tvö rúmgóð barnaherbergi.
Stofa, parketlögð og með útgengi á lóð.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með fallegum nýlegum hvítum innréttingum og eyju með áfastri borðaðstöðu.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf, skápar og vinnuborð með vaski.
Húsið að utan lítur mjög vel út og er í góðu ástandi.
Lóðin, sem er 784,0 fermetrar að stærð, er fullfrágengin. Framlóð hússins er með fallegum trjágróðri og hellulagðri innkeyrslu og stétt með hitalögnum undir. Baklóð er tyrfð og með fallegum trjágróðri.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og skjólsælum stað miðsvæðis í borginni þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is