Fasteignaleitin
Skráð 17. mars 2026

Hamraborg 14 A

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
72 m2
1 Herb.
Verð
39.900.000 kr.
Fermetraverð
554.167 kr./m2
Fasteignamat
28.400.000 kr.
Brunabótamat
28.650.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2061404
Landnúmer
114531
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita - Danfoss
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu:

Atvinnuhúsnæði hannað fyrir veitingarekstur., 72 m2  á 1. hæð við Hamraborg 14 í Kópavogi.

Um er að ræða mjög vel búið og vel skipulagt veitingahúsnæði útbúið á vandaðan hátt fyrir veitingasölu sem staðsett á góðum stað í Hamraborgar klasanum með hlutdeild í sameiginlegu bílastæðahúsi. Í húsnæðinu var áður rekin brauð og bakkelsis sala og var húsnæðið innréttað á vandaðan hátt á sínum tíma undir þá starfsemi. Að framanverðu eru stórir og gólfsíðir gluggar og er gengið inn um aðalinngang inn í rúmgott aðalrými sem er flísalagt. Í aðalrými er vegleg afgreiðsluinnrétting með granít borðplötum, glerframhliðum og panilklædd að neðan. Inn af aðalrými er snyrtileg salernisaðstaða með flísum í hólf og gólf ásamt upphengdu salerni, vaski og spegli. Tilvalið húsnæði undir veitingarekstur á rótgrónum stað miðsvæðis í vesturbæ Kópavogs. Hafið samband við Aðalstein Bjarnason lgf. í síma 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is fyrir nánari upplýsingar og skoðun.

Nánari lýsing: 
Aðalinngangur er Hamraborgarmegin en einnig er bakinngangur beint frá bílastæðahúsinu fyrir aðföng og starfsmenn. 
Húsnæðið er með gólfsíðum gluggum að framanverðu og er innréttað á vandaðan hátt. 
Salur með, afgreiðslu innréttingu og rými fyrir borð og sæti.
Eldhús með vinnuaðstöðu, vinnuborð, hillur, vaskur og uppþvottavél. Geymsla og salerni fyrir starfsmenn. 
Inngangur er einnig bakatil, frá bílageymslu til að taka á móti aðföngum og fyrir starfsmenn.
Í eldhúsi og á salerni er epoxy dúkur á öllum gólfum og upp á veggi fyrir auðveld þrif og hreinlæti.
Flísar á gólfum í afgreiðslu og veitingarými og góð lofthæð. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Aðalstein Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / margret@fstorg.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/12/202117.350.000 kr.25.000.000 kr.72 m2347.222 kr.Nei
25/06/201811.550.000 kr.17.000.000 kr.72 m2236.111 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baulurimi 7
Skoða eignina Baulurimi 7
Baulurimi 7
805 Selfoss
65.6 m2
Sumarhús
3
607 þ.kr./m2
39.800.000 kr.
Skoða eignina Geirþrúðarhagi 1 -306
Geirþrúðarhagi 1 -306
600 Akureyri
54.3 m2
Fjölbýlishús
211
864 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16, íbúð 0303
Hnjúkamói 16, íbúð 0303
815 Þorlákshöfn
50.9 m2
Fjölbýlishús
211
882 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 26
Skoða eignina Kuggavogur 26
Kuggavogur 26
104 Reykjavík
39.7 m2
Atvinnuhúsn.
11
1005 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin