Fasteignaleitin
Opið hús:29. apríl kl 18:00-18:30
Skráð 15. apríl 2021

Maríugata 38

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
90.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.500.000 kr.
Fermetraverð
915.649 kr./m2
Fasteignamat
79.000.000 kr.
Brunabótamat
53.850.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2510063
Landnúmer
228369
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt á skrá! Maríugata 38 í Garðabæ / Rúmgóð og vel skipulögð 3ja herb. íbúð með afar fallegu útsýni til fjalla.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega fallega, rúmgóða og vel skipulagða 3ja herbergja 90,1 fermetra útsýnisíbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýli með lyftu við Maríugötu 38 í Garðabæ. Íbúðin er með rúmgóðum svölum til suðurs með fallegu útsýni. Þvottaherbergi er staðsett innan íbúðar. Sérgeymsla sem er 5,7 fermetrar á jarðhæð hússins. Vandað hús byggt af ÞG Verk með fallegum innréttingum frá GKS.

Húsið er afar fallegt byggt árið 2021, álklætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulagðar stéttar og malbikuð sameiginleg stæði fyrir framan hús. Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign snyrtileg og til fyrirmyndar. Hjóla- og vagnageymsla er staðsett í kjallara hússins.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í Urriðaholti Garðabæ. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt leiksvæðum. Afar fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni um Heiðmörk, Urriðavatn og víðar. 

Lýsing eignar:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og innbyggðum skápum.
Alrými samanstendur af stofu (borðstofu og setustofu) og eldhúsi.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá GKS með eyju. Electrolux stál bakaraofn og Electrolux spanhelluborð. Innbyggð AEG uppþvottavél og innbyggður Electrolux kæliskápur með frysti. Lýsing undir efri skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi. Stofa er mjög vel skipulögð og rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til austurs og surðurs. Útgengi á svalir. Glæsilegt útsýni til fjalla frá alrými.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðurs með fallegu útsýni. Viður á svalagólfi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask og speglaskápur. Upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun. 
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tenglum fyrir þvottavél/þurrkara og útloftun.

Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. 
Sér geymsla: Er staðsett í kjallara og er 5,7 fermetrar að stærð.

Húsið að utan: Lítur vel út. Viðhaldslítið og nýlegt álklætt hús byggt af ÞG Verk. 
Lóðin: Er frágengin, vel hirt, tyrfðar flatir og hellulagðar stéttar.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/05/202121.800.000 kr.56.500.000 kr.90.1 m2627.081 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 170 201
Bílastæði
Opið hús:25. apríl kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 201
105 Reykjavík
118.3 m2
Fjölbýlishús
423
1030 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðalækur 20
Skoða eignina Rauðalækur 20
Rauðalækur 20
105 Reykjavík
85.1 m2
Fjölbýlishús
312
798 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Flyðrugrandi 20
Opið hús:29. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Flyðrugrandi 20
Flyðrugrandi 20
107 Reykjavík
71.6 m2
Fjölbýlishús
211
905 þ.kr./m2
64.800.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 11
Bílastæði
Skoða eignina Sunnusmári 11
Sunnusmári 11
201 Kópavogur
155.9 m2
Fjölbýlishús
414
737 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin