Nýtt á skrá! Holtsbúð 97 Garðabæ - Frábært og vel viðhaldið fjölskylduhús á 1554,0 fm lóð, með aukaíbúð, tvöföldum bílskúr og glæsilegu útsýni yfir höfuðborgina og til fjalla.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt 306,5 fermetra einbýlishús, teiknað af Kjartani Sveinssyni, á tveimur hæðum með aukaíbúð og stórum (57,4 fermetra) tvöföldum bílskúr við Holtsbúð 97 í Garðabæ. Eignin er nokkuð stærri en uppgefnir fermetrar gefa til kynna þar sem óskráðir fermetrar eru á neðri hæð hússins. Falleg og snyrtileg 1554,0 fermetra lóð með hellulagðri verönd til suðurs/suðvesturs. Stórt hellulagt bílaplan (að mestu með snjóbræðslu) sem rúmar fjölda bifreiða. Hellulagðar stéttar með snjóbræðslu að inngöngum hússins. Tyrfðar flatir og fallegur gróður er á lóðinni. Gengið austan megin við húsið (bílskúrsmegin) að íbúð á neðri hæð. Einfalt að opna aftur á milli efri og neðri hæðar og nýta allt húsið sem eina heild.
Virkilega falleg og sjarmerandi eign með aukinni lofthæð yfir aðalrýmum og fallegum arni. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og ber vel þess merki. Má þar m.a. nefna að árið 2025 var skipt um alla ofna á efri hæð hússins. Árið 2020 var skipt um öll gólfefni á efri hæð ásamt því að komið var fyrir gólfhita í forstofu og holi. Einnig var skipt um allar innihurðir, gestasalerni endurnýjað og sérsmíðaðir skápar settir upp í svefnherbergi og forstofuherbergi. Þá voru loft í svefnálmu og holi endurnýjuð. Auk þess var aðalbaðherbergi endurnýjað á afar fallegan máta árið 2012 og gólfhita komið fyrir.
Aðalhæð skiptist í: Forstofu, gestasnyrtingu, forstofuherbergi, sjónvarpsstofu, stofu, borðstofu, eldhús, svefngang, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.
Neðri hæð skiptist í: Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, hol, gang, svefnherbergi, baðherbergi, stórt rými (gluggalaust svefnherbergi eða sjónvarpsherbergi) og tvær geymslur.
Nánari lýsing:
Aðalhæð:
Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi.
Gestasnyrting: Endurnýjuð árið 2020. Flísar á gólfi, upphengt salerni og innrétting við vask. Gluggi til suðurs og innfelld lýsing í loftum.
Forstofuherbergi (svefnherbergi I): Með flísum á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Hol/sjónvarpsrými: Með flísum á gólfi, innfelldri lýsingu í loftum og glugga til suðurs.
Stofa: Með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og fallegum viðarpanel í loftum. Sjarmerandi arinn og gluggar til suðurs/vesturs. Stofa er opin við borðstofu.
Borðstofa: Með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og gluggum til vesturs og norðurs. Afar fallegt útsýni yfir höfuðborgina og til fjalla.
Eldhús: Með flísum á gólfi og viðar eldhúsinnréttingu með miklu skápaplássi. Eldhúseyja með Smeg gashelluborði og eyjuháf. Granít steinn á borðum, undirfelldur vaskur og afar glæsilegt útsýni.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tenglum fyrir þvottavél/þurrkara, vaski, þvottasnúrum og glugga til norðurs.
Svefngengur: Með flísum á gólfi.
Svefnherbergi II: Er stórt (var áður tvö barnaherbergi - hægt að breyta til baka) með parketi á gólfi, skápum og gluggum til norðurs með glæsilegu útsýni.
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, góðum skápum á heilan vegg og gluggum til suðurs.
Baðherbergi: Var endurnýjað árið 2012 á fallegan máta. Flísar á gólfi og veggjum ásamt gólfhita. Flísalögð sturta með innbyggðum Hansagrohe sturtutækjum og glerþili. Baðkar með sturtutækjum, upphengt salerni, innrétting við vask, skápur og handklæðaofn. Innfelld lýsing í loftum.
Bílskúr: Er stór (57,4 fermetrar að stærð), tvöfaldur og með gluggum til norðurs og austurs. Rafmagnsopnun á báðum innkeyrsluhurðum ásamt inngangshurð. Upphitaður með heitu/köldu vatni.
Neðri hæð - Aukaíbúð: Sérinngangur norðanmegin við hús. Gengið austan megin við húsið.
Forstofa: Með flísum á gólfi, fatahengi og gluggum til norðurs.
Stofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og gluggum til vesturs.
Borðstofa: Með flísum á gólfi, gluggum til vesturs og norðurs og opið við eldhús.
Eldhús: Með viðar eldhúsinnréttingu og góðum borðkróki. Smeg bakaraofn, tengi fyrir uppþvottavél, lýsing undir efri skápum og gluggar til norðurs.
Hol: Með flísum á gólfi (möguleiki er að opna á stiga upp á efri hæð/aðalhæð frá holi).
Gangur: Með flísum á gólfi.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Sturta, innrétting við vask, tenglar fyrir þvottavél/þurrkara, salerni og gluggi til norðurs.
Stórt herbergi: Sem er gluggalaust og getur nýst sem gluggalaust svefnherbergi eða sjónvarpsherbergi. Parket á gólfi og útloftun.
Geymsla I: Með máluðu gólfi.
Geymsla II: Með máluðu gólfi.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Búðunum í Garðabæ þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, fjölbrautarskóla, íþróttasvæði auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.