Fasteignaleitin
Skráð 9. júlí 2026

Svarfaðarbraut 22

EinbýlishúsNorðurland/Dalvík-620
192.9 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
93.600.000 kr.
Fermetraverð
485.226 kr./m2
Fasteignamat
62.450.000 kr.
Brunabótamat
92.350.000 kr.
Mynd af Friðrik Einar Sigþórsson
Friðrik Einar Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
6944220fsfasteignirEignalisti
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2155298
Landnúmer
151763
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt + timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Opnar til suðurs
FS fasteignir – 571-9992

Svarfaðarbraut 22, 620 Dalvík
Skemmtilega hannað og vandað 192,9 m6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr á Dalvík.

Eignin skiptist þannig:
- Neðri hæð: Forstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofa/borðstofa, eldhús og þvottahús/bakdyrainngangur.
- Efri hæð: Þrjú svefnherbergi, eitt með en suite baðherbergi og annað með svölum til suðurs.
- Utandyra: Bílskúr, steypt innkeyrsla, góður sólpallur við suður og vestur hliðar hússins.

Neðri hæð:
Forstofa er með flísum á gólfi, ný hurð sett 2018, inn af forstofu er fataherbergi sem var bætt við 2007.
Gangur/alrými er með parketi á gólfi, hátt til lofts yfir stofu/borðstofu og eldhúsi.
Herbergi á neðri hæð eru tvö, þar er parket á gólfum.
Baðherbergi er með flísum á gólfum og veggjum, sturta.
Stofa/borðstofa er björt með hurð út á pall í vestur, parket á gólfum og hátt til lofts.
Eldhús er í opnu rými með stofu/borðstofu, þar er parket á gólfum, innrétting frá Búnási sett upp 2025, innbyggð Siemens uppþvottavél, Miele ofn og spanhelluborð.
Þvottahús/bakinngangur er með flísum á gólfi, innrétting með rými fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Efri hæð: 
Svefnherbergi eru þrjú; hjóna herbergið er með parketi á gólfi, fataskáp og svalir til suðurs. Miðjuherbergið er með parketi á gólfi, fataskáp og glugga til austurs. Þriðja herbergið er teppalagt, með stiga upp á milliloft yfir herberginu og geymslurými undir súðinni, í herberginu er en suite baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari og sturtuaðstöðu.
Utandyra:
Bílskúr 
var byggður 1995 og er 32,6 m2 þar er málað gólf, góðir skápar og hillur, skipt var um inngönguhurð og bílskúrhurðaropnara 2025.
Innkeyrsla var steypt 2009 og rúmar fjóra bíla.
Sólpallur situr við vestur og suður hliðar hússins með skjólvegg sunnanmegin.

Annað:
- Efri hæð hússins innréttuð og skipt um raflagnir 2002-2004 (baðherbergi á efri hæð gert upp 2010).
- 2009-2010 nýjar lagnir lagðar úr götu í bílskúr.
- Ruslatunnuskýli steypt 2012
- Velúxgluggar settir á framhlið hússins 2016.
- Nýjar útidyrahurðir frá Berki settar upp 2018.
- Nýtt járn sett á þak 2020 og framhlið hússins 2021.
- Klæðning hefur verið endurnýjuð eftir þörfum og máluð reglulega.
- Síðast klætt á efrihæð, norðurhlið 2025.
- Skipt um alla ofna í húsinu nema baðofna 2020.
- Herbergi á neðri hæð breytt úr þrem í tvö og fataherbergi í forstofu gert 2007.
- Nýjar hurðir innandyra settar upp og rafmagn dregið í herbergi á neðri hæð 2007.
- Dregið í allt rafmagn í alrými, ný rafmagnstafla, hiti settur í gólf í alrými og skipt um allar vatnslagnir 2025.
- Nýtt gler í gluggana í svefnherberbergi (nema á vestuhlið) og nýtt opnanlegt fag sett 2026.

Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1996
32.6 m2
Fasteignanúmer
2155298
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.900.000 kr.

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Höfðagata 3A
Skoða eignina Höfðagata 3A
Höfðagata 3A
610 Grenivík
100.4 m2
Raðhús
413
618 þ.kr./m2
62.000.000 kr.
Skoða eignina Byggðarholt 20
Bílskúr
Opið hús:15. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Byggðarholt 20
Byggðarholt 20
270 Mosfellsbær
180.8 m2
Einbýlishús
614
856 þ.kr./m2
154.800.000 kr.
Skoða eignina Furugrund 37
Skoða eignina Furugrund 37
Furugrund 37
300 Akranes
176.5 m2
Einbýlishús
614
544 þ.kr./m2
96.000.000 kr.
Skoða eignina Birkimelur .
Skoða eignina Birkimelur .
Birkimelur .
311 Borgarnes
189.4 m2
Einbýlishús
524
501 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin