Fasteignaleitin
Skráð 30. apríl 2025

Stórholt 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
80.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
929.280 kr./m2
Fasteignamat
62.600.000 kr.
Brunabótamat
37.150.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Jarðhæð af 2
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2011443
Landnúmer
103215
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjað
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
Endurýjað 2000
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt á skrá! Stórholt 12 Reykjavík - Afar falleg þriggja herbergja íbúð með útleigueiningu í kjallara

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallega þriggja herbergja íbúð með útleigueiningu í kjallara sem hefur verið mikið endurnýjuð. Frábært fjárfestingartækifæri með góða tekjumöguleika. Sumarið 2021 var íbúðin endurnýjuð öll að innan, m.a. innréttingar, gólfefni og baðherbergi tekið í gegn. Þá var dregið fyrir nýju rafmagni og rafmagnstafla endurnýjuð. Að sögn eiganda voru skólplagnir teknar í gegn árið 2024 og fóðraðar ásamt því að dren og þakrennur voru endurnýjaðar sumarið sama ár. Í október 2024 var skipt um glugga íbúðar og herbergis niðri.

Eignin skiptist í hol, 2 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Í kjallara er studioherbergi, sérgeymsla, gott rými fyrir sturtu, eldhúskrók o.fl. og sameiginleg snyrting.

Nánari lýsing:
Komið er inní hol með fatahengi og harðparketi á gólfi. Á vinstri hönd er flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu við vask. Gluggi er á baðherbergi og tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Þar við hlið er svefnherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi. Á hægri hönd í holi er svefnherbergi II með harðparketi á gólfi. Innst í holi er gengið annars vegar inn í rúmgóða stofu með harðparketi á gólfi og hins vegar fallegt endurnýjað eldhús með harðparketi á gólfi. Opið er á milli stofu og eldhúss.

Í kjallara er 16,7 fm. studioherbergi með glugga. Þá er sérgeymsla sem er 3,2 fm. Munnlegt samkomulag er um að eigendur skipta með sér rýmum sem voru nýtt áður sem þvottaherbergi og þurrkherbergi. Þessi íbúð nýtir rými sem var áður sameiginleg þvottaherbergi (u.þ.b. 9-10 fm) þar sem núna er sturtuklefi, eldhúsaðstaða og önnur aðstaða fyrir leigjanda í kjallara. Þá er sameiginleg snyrting í kjallara með salerni og vaski.

 
Eignin er skráð samkvæmt þjóðskrá Íslands 80,6 m2, þar af íbúð 60,7 fm, geymsla 16,7 fm og geymsla 3,2 fm. 

Ekkert formlegt húsfélag er starfandi í húsinu

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun:
Heimir Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali
heimir@fastlind.is / 8490672


Stórholt 12, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 201-1443 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Stórholt 12 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-1443, birt stærð 80.6 fm.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/05/202138.500.000 kr.40.000.000 kr.80.6 m2496.277 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 62
Efsta hæð
Skoða eignina Laugavegur 62
Laugavegur 62
101 Reykjavík
65.7 m2
Fjölbýlishús
312
1064 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Sogavegur 101
Skoða eignina Sogavegur 101
Sogavegur 101
108 Reykjavík
72.3 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
211
773 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn A 610
Orkureiturinn A 610
108 Reykjavík
57.3 m2
Fjölbýlishús
211
1185 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 4B íb. 102
Bílastæði
Opið hús:15. júlí kl 16:30-17:00
Apalskarð 4B íb. 102
221 Hafnarfjörður
85.1 m2
Fjölbýlishús
312
817 þ.kr./m2
69.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin