Hraunhamar fasteignasala kynnir:
Glæsileg, vönduð og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í nýju þríbýli. Góð staðsetning, innarlega í botnlanga í Skarðshlíðarhverfi, stutt í skóla/leikskóla og fallega náttúru. Íbúðin er 112 m2, með sérinngangi og sérafnotareit í suður Verður afhent fljótlega, fullbúin með gólfefnum og lóð frágengin.### Stór sérafnotareitur í suður, 35,7 m2
### Aukin lofthæð.
### Gólfhiti.
### Þrjú rúmgóð svefnherbergi.
### Þvottahús.
### Simens heimilistæki, innfelldur ísskápur og uppþvottavél.
### Fallegar ítalskar innréttingar og skápar frá Miton. Kvartz á borðum. Nánari lýsing:Húsið er hannað af
KrArk. Það er staðsteypt, múrað og málað. Einhalla timburþak með PVC dúk. Vandaðir tré/ál gluggar og hurðir frá Ideal Combi.
Innveggir úr tvöföldu gifsi með einangrun. Aukin lofthæð í allri íbúðinni. Gólfhiti í öllum rýmum ásamt hitastýringu.
Votrými og forstofa eru með vönduðum 60x60 flísum frá Álfaborg og harðparket frá Birgisson í öðrum rýmum. Hvítar hurðir frá Birgisson.
Forstofa er flísalögð með rúmgóðum skápum.
Eldhús með vandaðri ítalskri innréttingu frá Miton og kvartz steini á borðum.
Innbyggður ísskápur og uppþvottavél ásamt undirlímdum vaski. Breið
eyja sem hægt er að sitja við, ásamt spanhelluborði og háf. Heimilistæki frá Simens og uppþvottavél frá Electrolux.
Bjart
alrými með
stofu og
borðstofu, gólfsíðir gluggar og útgengi á
35,7 m2 sérafnotareit sem snýr í
suður.Þrjú rúmgóð
svefnherbergi með fataskápum frá Miton.
Flísalagt
baðherbergi með innréttingu frá Miton, sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Þvottahús með vaski og innréttingu. Gluggi með opnanlegu fagi.
Þetta er glæsileg eign, vandað til verka og til afhendingar fljótlega.
Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af væntanlegu brunabótarmati.Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.