Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna í einkasölu eignina Laxatunga 24, 270 Mosfellsbær.
Stórglæsilegt endaraðhús með fjórum svefnherbergjum, góðum bílskúr, gestahúsi og aukageymslu á fallegri lóð. Eignin er á frábærum stað þar sem útsýnis nýtur. Tvennar svalir, steypt verönd, gróin lóð, gott bílaplan með hita, rólegt og skjólgott umhverfi.
Eignin ber merki um vandaðan frágang og smekkvísi og vel hefur verið hugsað um eignina.
Garður er fallegur og í mikilli rækt, gestahús 16 fm með baðherbergi og eldhúsinnréttingu, parket á gólfi, (skráð sem geymsla).
Steypt bílaplan og næg bílastæði. Við innkeyrslu er hlaðið 10 fm. hús með rými fyrir sorpgeymslu og geymslu fyrir garðverkfæri og reiðhjól með frágang til fyrirmyndar.
Nánari lýsing eignar.
Komið er inní rúmgott anddyri með góðum skápum og þaðan er komið inn í rúmgott hol
Gestasnyrting innan við forstofu, flísalögð með upphengdu salerni, innréttingu og fallegri lýsingu.
Á jarðhæðinni er rúmgóð stofa, eldhús með stórri eyju og fallegum borðkrók.
Gengið út á sólpall og þaðan út í garð.
Eldhús með sérsmíðari innréttingu frá Innex, með stórri eyju, kvarts borðplötum, span helluborði og innbyggðri viftu í eyju.
Tveir ofnar, borðkrókur og útgengi á steypta verönd (væri sniðugt að byggja á sólskála). Falleg stofa og góð lofthæð.
Efri hæð
Er hol sem hægt er að nýta sem sjónvarpshol, Innfelld lýsing og góð lofthæð gefa eigninni aukið gildi.
Svefnherbergin eru fjögur, þar af þrjú með fataskápum og tvö með útgengi á svalir, aðrar í austur og hinar í suðvestur.
Stórglæsilegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og fallega hönnuð sturtuaðstaða með glerskilrúmi.
Bakvið spegilhurð í baðherbergi er rúmgott þvottahús með stórri innréttingu.
Sömu flísar eru á öllum gólfum hússins.
Bílskúr og gólfhiti með hitastýringu fyrir hvert rými.
Bílskúr er 25,3 fm, með máluðu gólfi og rafmagns opnun á hurð, innangengt úr forstofu.
Geymsla er innaf bílskúr undir stiga.
Fasteignamat 2027 verður 148,300,000 kr
Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.