Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. s.893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Glæsileg nýleg og rúmgóð 3-4ja herbergja 116,8 fm endaíbúð á 3 hæð í vönduðu glæsilegu lyftuhúsi (2017) á þessum eftirsótta stað við Mánatún 1 Rvk. Tvær lyftur eru í stigahúsinu. S-vestur svalir. Gott stæði í bílahúsi fylgir. Útsýni. Eignin er laus við kaupsamning. Hús klætt að utan og því viðhaldslétt. Húsið er vel staðsett í hverfinu. Fallegur garður og rúm aðkoma. Stutt í alla þjónustu, verslanir, og stofnbrautir, útsýni.Nánari lýsing:Eignin skiptist í rúmgóða forstofu með vönduðum stórum fataskáp, nær upp í loft.
Stórt alrými sem er stofa, borðstofa og eldhús.
Eldús er glæsilegt með vandaðri innréttingu og stórri eyju og spanhelluborði. Innbyggð tæki fylgja og ísskápur.
Sérþvottaherbergi með rúmgóðri innréttingu/skápum og vaski. Þvottavél og þurrkari fylgir.
Svefnálma: vinnukrókur/talva, rúmgott bjart
hjónaherbergi með m.a. tveimur opnanlegum gluggum í suður og vestur, vandaður skápur upp í loft.
Barnaherbergi/aukaherbergi með vönduðum skáp upp í loft.
Baðherbergi er sérlega fallegt og rúmgott með fínni sturtuaðstöðu og vandaðri innréttingu, flísar í hólf og gólf.
Sérgeymsla rúmgóð í kjallara ásamt sérmerktu stæði í bílageymslu. (lyftur ganga niður í kjallarann)
Sameign: Er vönduð utan sem innanhúss. Hjóla og vagnageymsla. N-svalir á hæðinni.
Harðparket á gólfum. Vandaðar innréttingar frá Brúnás ehf. Eignin er skráð hjá 116,8 m², með 10 fm geymslu og auk rúmgóðu bílastæði í kjallara.Svalir til suðvesturs frá stofu. (jafnvel möguleiki er að loka þeim)
Húsið við Mánatún 1 er staðsett í hjarta höfuðborgarinnar.Aðkoman er í senn þægileg og aðlaðandi.
Gangstétt er frá rúmgóðu bílastæði við torg í skjóli húsanna.Stutt er í margvíslega afþreyingu, og hindrunarlausar gönguleiðir eru í útivistina í Laugardalnum.Arkitekta hönnun hússins hefur vakið athygli fyrir gott fyrirkomulag og nútímalegt útlit í borgarmiðuðu umhverfi.Hússjóður er í kringum kr. 24 þús á mánuði.
Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is Freyja M Sigurðard. lgf. s. 862-4800 freyja@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. Þjónustusamningi
Hraunhamar er ein af elstu fasteignasölum landsins, stofnuð 1983.
Hraunhamar í farabroddi í rúm 40 ár! – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.