Fasteignamiðlun kynnir eignina Túngata 18, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0964 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Túngata 18 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0964, birt stærð 180.4 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.
Um er að ræða einbýlishús í miðbæ Siglufjarðar á þremur hæðum með séríbúð á neðri hæð með sérinngang. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, 2 baðherbergjum, 5 svefnherbergjum, þvottahúsi og geymslulofti.
Miðhæð eignarinnar er 69,2fm og samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, 1 svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa: er mjög rúmgóð með flísum á gólfi og góðu fatahengi.
Eldhús: er með hvítri innréttingu og ljósri borðplötu. Dúkur er á gólfi.
Stofa/borðstofa: liggur saman í mjög rúmgóðu rými með góðu gluggarými og dúk á gólfi.
Svefnherbergi: er með dúk á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: er með frístandandi sturtuklefa, innréttingu og salerni.
Ris eignarinnar er 42fm hluta til undir súð og samanstendur af fjórum svefnherbergjum, baðherbergi og aðgengi að háalofti.
Svefnherbergi: eru fjögur samtals misstór eitt þar af með aðgang að útsýnissvölum. Dúkur er á gólfi.
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og hluta af veggjum, baðkari, innréttingu, vask og salerni.
Á jarðhæð eignarinnar er 69,2fm séríbúð með sérinngang sem samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, baðherbergi og tveimur rúmgóðum svefnherbergjum.
Forstofa: er mjög rúmgóð með steyptu gólfi.
Eldhús: er opið með stofu með ágætis innréttingum. Gólf er steypt
Baðherbergi: er með frístandandi sturtu, innréttingu, vask og salerni. Flísar eru á gólfi.
Svefnherbergi: eru tvö með steyptu gólfi.
Garður: er stór og grasilagður.
Árið 2017 var lóð jöfnuð og stórt bílaplan búið til. Nýtt klóak rör frá húsi að lóðarmörkum var sett árið 2020. Leyfi liggur fyrir því að byggja gestahús á lóðinni en búið er að leggja vatn og rafmagn út fyrir því.
Matskýrsla dómskvaddra aðila liggur fyrir vegna rakaskemmda í eigninni sem hægt er að óska eftir hjá fasteignasölunni.