Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Rafnkelsstaðavegur 5

EinbýlishúsSuðurnes/Garður-250
193.1 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
356.810 kr./m2
Fasteignamat
74.650.000 kr.
Brunabótamat
99.100.000 kr.
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2095975
Landnúmer
130785
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Ásberg fasteignasala sími 421-1420, kynnir í einkasölu Rafnkelsstaðavegur 5, Garði Suðurnesjabæ sem er einbýli með bílskúr.

Mikið endurnýjað einbýli staðsett á einstökum stað, en húsið stendur á sannkallaðri útsýnislóð nálægt sjónum.
Rafnkelsstaðavegur er róleg botnlangagata og eru einungis 4 hús við götuna í dag.
Mikið af opnu svæði í nágrenninu, þannig að það má eiginlega segja að þetta sé sveit í bæ. Gott útsýni er yfir Faxaflóa og Vesturland, alla leið yfir á Snæfellsnesið. Stór afgirtur garður er með húsinu og er þetta t.d. upplögð aðstaða fyrir hundafólk eða aðra sem vilja njóta nálægðar við náttúruna, með hesta á beit á túninu við hliðina á húsinu og hlusta á lóuna syngja sinn vorsöng.
Garður er þekktur fyrir sín stórkostlegu sólsetur og það er svo sannarlega hægt að njóta þeirra á þessum stað.
Skv. Þjóðskrá Íslands er húsið steypt, byggt 1967 og er 153 m2 að stærð, ásamt 40,1 m2 bílskúr. Heildarstærð eignar er 193,1 m2
Gengið er inn í gott anddyri, þar er innangengt á gestasalerni.
Úr anddyri er svo gengið inn í rúmgóðar stofur, þar er eldhúsið á vinstri hönd og svefnherbergisálman á hægri hönd.
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu í dag, en voru fjögur áður. Möguleiki er á að breyta því aftur. Baðherbergi er á svefnhergbergisgangi.
Búið er að opna úr eldhúsi inn í stofu, þannig að eldhús og borðstofa/stofa eru samliggjandi. Þvottahúsið er svo inn af eldhúsinu.
Hurð er út í garðinn frá holi/svefnherbergisgangi og þar er lítill pallur/verönd sem þarfnast viðhalds.
Bílskúrinn er samfastur en með sérinngangi. Tvær geymslur eru innst í skúrnum. Bílskúrshurðin er með rafmagnsopnara. Rúmgóð innkeyrsla fyrir framan bílskúr/hús.
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu á síðastliðnum 4 árum.
Húsið afhendist sparslað, grunnað og nýmálað að innan, án innréttinga, loftklæðninga, gólfefna og innihurða.
Baðherbergi með flotuðu gólfi, upphengdu klósetti og mótað fyrir sturtu. Gestasalerni ófrágengið.
Nýtt þakjárn var sett á íbúðarhús árið 2022, nýjar flasningar og nýtt þakjárn á bílskúr 2024 . Nýtt timbur sett framan á þakkant hússins.
Gólfhiti lagður í íbúðarhús, ofn er í bílskúr.
Gluggar/gler endurnýjað þar sem þurfti.
Nýjar neysluvatnslagnir, plastskólplögn út úr íbúðarhúsi, skólplögn endurnýjuð frá bílskúr út í brunn. Einnig er búið að endurnýja stofnlagnir að húsinu og setja nýjan brunn.
Ný rafmagnstafla í íbúðarhúsi og í bílskúr. Raflagnir í íbúðarhúsi endurnýjaðar og nýjar stofnlagnir. Nýir rafmagnstenglar og slökkvarar verða settir í húsið fyrir afhendingu.
Einangrun í lofti endurnýjuð, fyrir utan eldhús/þvottahús/anddyri.
Bílskúr er málaður að innan sem og gólf hans.
Hellulagt bílaplan. Húsið málað að utan árið 2025.
Það er stutt á tvo átján holu golfvelli. Grunnskóli, leikskóli, íþróttamiðstöð og sundlaug.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 59.900.


Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is

Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837,
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837.

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/08/202239.500.000 kr.31.500.000 kr.193.1 m2163.127 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1967
40.1 m2
Fasteignanúmer
2095975
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.050.000 kr.

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Seljabraut 38
Bílskúr
Opið hús:02. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Seljabraut 38
Seljabraut 38
109 Reykjavík
169.9 m2
Fjölbýlishús
415
438 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 102D
Bílskúr
Opið hús:03. júlí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Hraunbær 102D
Hraunbær 102D
110 Reykjavík
122.9 m2
Fjölbýlishús
413
642 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 31
Hlíðarhjalli 31
200 Kópavogur
258.8 m2
Einbýlishús
725
Fasteignamat 172.800.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Flétturimi 11
Bílskúr
Skoða eignina Flétturimi 11
Flétturimi 11
112 Reykjavík
108.9 m2
Fjölbýlishús
311
715 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin