Fasteignaleitin
Skráð 3. júní 2026

Boðaþing 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
123.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
846.651 kr./m2
Fasteignamat
88.000.000 kr.
Brunabótamat
70.540.000 kr.
Mynd af Hilmar Þór Hafsteinsson
Hilmar Þór Hafsteinsson
Lögg. fasteignasali/leigumiðlari
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2306464
Landnúmer
203087
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Í lagi að best er vitað. Hús byggt árið 210.
Raflagnir
Í lagi að best er vitað. Hús byggt árið 210.
Frárennslislagnir
Í lagi að best er vitað. Hús byggt árið 210.
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler. Hús byggt árið 2010.
Þak
Í lagi að best er vitað. Hús byggt árið 210.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita- ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Glæsileg og vönduð 123,9 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sólskála og sér garði í húsi fyrir 55 ára og eldri. Sér merkt bílastæði er í lokaðri bílgeymslu. Íbúðin skiptist í stofu og borðstofu ásamt skála, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi og tvö svefnherbergi. Íbúðin getur verið laus fljótlega. Fasteignamat 2026 er kr. 88.000.000,-

Falleg og björt eign í vönduðu húsi byggt af Húsvirki. Stutt er í náttúruperlur eins og Heiðmörk og Elliðavatn. Þá er stutt í golf, veiði, hestamennsku og sund svo eitthvað sé nefnt. Sólskáli, og sér þvottaherbergi í íbúð, bílskýli, lyfta og upphitaðar stéttir á lóð. AEG eldhústæki, granítborðplötur og sólbekkir, hreinlætistæki frá Tengi, Innréttingar frá Axis, flísar frá Birgisson og innihurðar frá Víkurási.  Eignin stendur við hlið þjónustumiðstöðvar eldri borgara  en þangað er hægt að sækja í ýmsa þjónustu og félagslíf. Boðinn félagsmiðstöð.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum. Fataskápar og flestar innréttingar ná upp í loft. Inn af forstofu er þvottahús með innréttingu og vaski. Forstofuherbergi er með fataskáp. Komið er í alrými þar sem er stofa, borðstofa, skáli og eldhús. Stofurnar eru rúmgóðar og bjartar. Inn af borðstofu er skáli með rennigluggum Þar sem hægt er að renna frá efri hluta. Gengið er úr skála út í hellulagðan sér garð. Garðurinn er lagður steinhellum og timbur skjólveggjum á alla kanta. Eldhús er opið inn í stofu og er með innréttingum á tvo vegu. Granít borðplötur er á borðum og er skápapláss gott. Borðkrókur er innst við glugga. Hjónaherbergi er með fataskápum. Baðherbergi er allt flísalagt. Innrétting er við vask, granít borðplata, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með glerlokun. Innréttingar íbúðar eru úr eik og er eikarparket á stofum og herbergjum en flísar á öðrum gólfum.
Í kjallara er sér geymsla íbúðarinnar og sameiginleg hjólageymsla. Bílastæði er rúmgott og hleðslustöð fyrir bílhleðslu er til staðar.

Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/05/202688.000.000 kr.104.500.000 kr.123.9 m2843.422 kr.
19/10/201843.200.000 kr.58.000.000 kr.123.9 m2468.119 kr.Nei
07/01/201327.450.000 kr.32.900.000 kr.123.9 m2265.536 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2010
Fasteignanúmer
2306464
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
14
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.890.000 kr.

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Flétturimi 11
Bílskúr
Skoða eignina Flétturimi 11
Flétturimi 11
112 Reykjavík
108.9 m2
Fjölbýlishús
311
734 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 208
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 208
221 Hafnarfjörður
117.9 m2
Fjölbýlishús
413
720 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 104 Hlutd.lán
Bílastæði
Hringhamar 37, íb. 104 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
114.8 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Breiðvangur 8
Bílskúr
Skoða eignina Breiðvangur 8
Breiðvangur 8
220 Hafnarfjörður
113.1 m2
Fjölbýlishús
311
618 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin