ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Hallgerðargata 11, 105 Reykjavík, birt stærð 91.4 fm.Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða íbúð á efstu hæð við Hallgerðargötu 11, íbúðin er í miðri íbúðarbyggð í nálægð við útvistar- og náttúrusvæðum eins og Laugarnesi og Laugardal. Um er ræða steinsteypt hús, einangruð og klædd að utan með áli. Áhersla er lögð á að brjóta upp útlit húsanna með mismunandi litum og áferð. Sérstök áhersla hefur verið lögð á efnisval, áferðir og vandaðan frágang. Skjólgóður og gróðursæll inngarður skapar svo vettvang fyrir skemmtilegt sameiginlegt svæði íbúa.
Skipulag eignar: Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, stofa og eldhús í opnu og björtu rými, útgengt á svalir úr stofu, tvö svefnherbergi. Sérgeymsla í sameign.
Möguleiki er á að leiga bílastæði í bílakjallara.
Möguleiki er að innbú fylgi með.
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.isNánari lýsing eignar:
Forstofa hefur harðparket á gólfi og góða forstofuskáp.
Eldhús Sérsmíðuð innrétting með ljúflokun, borðplata frá Egger. Eldhúsið er með tæki frá AEG; þar á meðal spanhelluborð, innbyggða viftu, blástursofn,innbyggðan ísskáp og uppþvottavél.
Stofa/borðstofa hefur harðparket á gólfi, alrýmið er bjart og opið, stofa og borðstofa renna saman í eina heild. Úr stofu er gengið út á svalir.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og hluta veggja, snyrtileg innrétting, walk in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inná baði.
Svefnherbergin eru tvö hafa bæði harðparket á gólfi og fataskápa.
Svalir með útsýni.
Sérgeymsla í sameign.
Bílakjallri: Hægt er að leigja bílastæði í bílakjallara. Leiguverð 9.000 kr á mánuði.
Umhverfi: Afar stutt er í fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og afþreyingu í Laugardal og Borgartúni en þar er úr mörgu að velja fyrir alla aldurshópa. Í göngufæri er svo Laugalækur sem ber sérstakan sjarma með sínum litlu einstöku verslunum og annarri þjónustu. Heilsugæstlan Kirkjusandi er í næsta húsi. Ungbarnaleikskóli er í húsinu.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.